Úrval - 01.05.1968, Síða 41
HEILAGUR PATREKUR
39
sárrar þjáningar. En þegar Patrek-
ur sá loks, hvað hann hafði gert,
spurði hann höfðingjann, hvers
vegna hann hefði ekki kvartað.
Vesalings maðurinn svaraði því þá
til, að hann hefði haldið, að við
skírnina ætti að særa hann þeim
hinum sömu sárum og Jesú hafði
verið særður fyrrum. Hann hélt,
að slíkt vséri nauðsynlegt, ætti
hann að vera tekinn í söfnuð krist-
inna manna.
Hvar sem Patrekur fór, stofnaði
hann kirkjur og kenndi írskum
mönnum prestleg fræði. Honum
gekk bezt í norðurhluta landsins,
þar sem tugþúsundir sneru sér frá
dýrkun skurðgoða sinna og tóku
upp kristna trú. Og enn þann dag
í dag hafa forvígismenn mótmæl-
endakirkjunnar og kaþólsku kirkj-
unnar í írlandi aðsetur sitt í litla
bænum Armagh, þar sem ríkir líf
og fjör, en í bæ þesspm voru ein-
mitt aðalbækistöðvar fyrir trúboðs-
starf Patreks.
íbaráttu sinni fyrir andlegum yf-
irráðum í írlandi gat ekki hjá því
farið, að Patrekur kæmist í and-
stöðu við valdamesta mann lands-
ins, hinn grimma og ógnvekjandi
Laoghaire, er ríkti sem yfirkon-
ungur á hinum frjósömu sléttum í
miðbiki landsins. Virki hans, Tara,
var reist uppi á hæð einni, en þar
má enn sjá leifar af hinum dýr-
legu salarkynnum þess enn þann
dag í dag.
Samkvæmt viðurteknum venjum
ákvað Patrekur að hefja sókn á
þann hátt, að það færi ekki á milli
mála, hvað hann ætlaði sér. Einn
páskadagsmorgun kleif hann upp á
Slanehæð, sem er í 10 mílna fjar-
lægð frá Tara, og kveikti þar mik-
inn páskaeld. En þennan dag var
einmitt haldin mikil hátíð heiðinna
manna. Þá mátti ekki kveikja neinn
eld, fyrr en konungurinn sjálfur
hefði kveikt sinn eld. Druidi sá,
sem var helzti ráðgjafi konungs,
gaf þá eftirfarandi yfirlýsingu:
„Ef eldur þessi verður ekki slökkt-
ur, mun hann brenna að eilífu og
eyða öllu írlandi.“
Nú hófust ákafar deilur milli
hinna konunglegu Druida og Pat-
reks, sem með krafti bæna sinna
þeytti æðsta Druidanum hátt í loft
upp. Þegar hann kom aftur til jarð-
ar, molaðist höfuð hans. Yfirkon-
ungurinn varð nú skelkaður mjög
og bað um að fá að skírast. Hið
auðuga írska ímyndunarafl? Vissu-
lega! En samt álíta fræðimenn það
líklegt, að Patrekur hafi náð sam-
komulagi við helztu stjórnendur
landsins og að hann hafi fengið
leyfi þeirra til þess að boða lands-
lýð kristna trú og snúa honum til
þeirrar trúar.
DÝRLINGURINN LIFIR
ENN ÞANN DAG í DAG
Enn þann dag í dag lifir hinn
mikli kraftur Patreks góðu lífi. Það
er aðallega tvennt, sem hefur orð-
ið til þess að gera þann mikla kraft
ódauðlegan. Þar er um að ræða
tvær píslargöngur, sem farnar eru
á hverju ári til minningar um
hann, og eru þær með hörðustu
píslargöngum, er þekkjast nú innan
kristninnar. Önnur er þriggja daga
pílagrímsför til Stöðvareyjar
(„Hreinsunarelds Sankti Patreks")