Úrval - 01.05.1968, Page 44
Nú lifa u.þ.b. 14000 vísundar í um það bil 220 afréttarlöndwm
og þjóðgörðum Norður-Ameríku og eru i daglegu tali nefndir
buffalar (buffalo). Þar að auki munu þeir vera tU á
450 búgördum í einkaeign í Bandaríkjunum.
Vísundimum
fjölgar aftur
Eftir BILL SURFACE
Tígui-legur vísundstarí-
ur stóð og horfði upp í
vindinn. Skyndilega
fann hann þef manna
7Aog hesta, fnæsti æðis-
lega og þaut á undan hundrað dýra
hjörð yfir sléttur Suður-Dakota.
En veiðimönnunum tókst að kljúfa
hjörðina sundur í nokkra smáhópa
og ráku síðan einn hópinn inn á
vissan stíg. Þar skutu þeir 28 tarfa.
Gerðist þetta í villta, vestrinu?
Ekki alveg — og þó. Þetta skeði
síðastliðið ár og er einn vitnis-
burður þess, að Ameríkuvísundun-
um hefur fjölgað síðastliðna ára-
tugi.
Nú lifa u.þ.b. 14000 þessara dýra í
um það bil 220 afréttarlöndum og
þjóðgörðum Norður-Ameríku og
eru í daglegu tali nefndir buffalar
(buffalo). Þar að auki munu þeir
vera til á 450 búgörðum í einkaeign
í Bandaríkjunum. Nógu margir
bændur ala stöðugt upp buffala til
þess, að kjöt þeirra fæst nú stöð-
ugt á mörkuðum, í verzlunum og
er einnig á matseðlum veitinga-
húsanna. Og feldir þeirra hafa
reynzt svo verðmætir, að loðskinna-
kaupmenn spá því, að léttir vís-
undaskinnfrakkar muni komast í
tízku.
Furðulegast af öllu í sambandi
við vísundana er, að þeir skuli vera
til. Eitt sinn reikuðu margar millj-
ónir þeirra um sléttur Norður-
Ameríku og jafnvel árið 1867 urðu
lestir að bíða klukkustundum sam-
an, meðan hjarðirnar fóru yfir tein-
ana. En veiðarnar urðu svo ákaf-
ar, að tegundinni var nærri því út-
42
Readers Digest