Úrval - 01.05.1968, Side 46

Úrval - 01.05.1968, Side 46
44 ÚRVAL því, þegar hann ]ét hest sinn brokka fram hjá mjög „góðlegum" bola, að skyndilega voru bæði hann og hesturinn ríðandi í hásæti á hornum tuddans. Enginn skyldi nokkru sinni treysta vísundum, hversu góð- legir og rólegir sem þeir virðast „Sá, sem þekkir vísund bezt, treystir þeim sízt“, segja reyndir gæzlumenn. Byrjendum í því starfi er oft sögð sagan um Dick Rock og félaga hans. Þeir höfðu gætt hóps nokkurs, síðan vísundarnir voru kálfar og tamið þá, riðið á þeim og sýnt þá. Dag einn réðst uppá- haldsvísundur Rocks á hann, stang- aði hann til bana og hélt áfram að tæta lík hans sundur með horn- unum, þangað til hann var skot- inn. Félagi Rocks sneri eitt sinn baki að sex vetra gömlum tarfi, sem gerði sér lítið fyrir og stang- aði hann stórhættulega. Vísundarnir geta gengið allt frá fæðingu. Meðgöngutíminn er níu mánuðir og kálfarnir fæðast venju- lega seint á vorin. Þá eru þeir rauðgulir á lit og 25 kg. þungir. Eftir 5—10 mínútur eru þeir komn- ir á fót, farnir að sjúga, geta geng- ið og jafnvel brokkað af stað. Fimm til sex vikna, byrja þeir að kroppa gras, en árs gamlir ganga þeir und- an mæðrunum. Fullvaxnir verða þeir 7- -8 vetra og þá eru tarfarn- ir orðnir upp undir tonn á þyngd, en kýrnar rúmlega V2 tonn. Þá eru þeir búnir að fá tvö hélugrá horn, beygð í hálfhring. Þeir hafa tvö aukarifbein, eitt í hvorri síðu. Hafa þeir því 14 rifbein hvorum megin, en aðrar nautgripategundir hafa aðeins 13. Hárið er dökkbrúnt og fellur á hverju vori, en hangir þó í sneplum víða um skrokkinn, nema á herðakambi, en þar er oft- ast samfellt reyfi Nægjusemi vísundanna og harka við að ganga fyrir sér sjálfir er að- alástæðan fyrir því að bændur tóku upp ræktun þeirra. Nú eru hjarðir af þeim í 46 ríkjum Bandaríkjanna og víðsvegar í Kanada. Þótt þeir séu helmingi stærri en venjulegt naut, geta þeir lifað á þriðjungi minna beitilandi, hagnýtt gras, sem nautgripir líta ekki við og skammtað sér sjálfir, þegar þröng gerist um haga, eða ef jarðbann verður vegna snjóa. Enginn skyldi þó álíta leik einn að sjá um þá, enda mjög ólíkt því að fást við nautgripi. Það reyndist mánaðarstarf fyrir 8 smala, alla vel ríðandi, að smala saman 1200 vísundum á fjallasvæði einu í fyrra haust. Hjarðirnar voru dreifðar á landi, sem náði 15 km í allar átt- ir út frá kvíunum. Smalarnir nálg- uðust þá úr þrem áttum til að reka þá að áheldinu og þannig tókst að beina þeim að afgirtum högum, sem smáþrengjast að kvíunum. En 25 taríar reyndust svo þráir, að þeir voru órekandi og gáfust mennirn- ir upp við þá. Seinna var svo lit- ið eftir þeim úr flugvélum. Þetta var í haust er leið. Síðan voru kálfarnir bólusettir og brennimerktir og síðan var öll- um hópnum sleppt, svo að þeir gætu lifað frjálsir eins og forfeður þeirra hafa gert frá örófi alda. Nokkrir voru þó seldir til slátrunar eða til undaneldis á öðrum stöðum. Þó að þetta svæði sé stórt og eingöngu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.