Úrval - 01.05.1968, Side 57
PONTÍUS PÍLATUS
55
aða gjalda fé í ríkissjóð Rómaveld-
is.
Landstjóri fékk ekkert kaup
goldið, en ætlazt var til að hann
kæmi aftur heim til Rómar ríkari
en hann fór. Flestir voru þessir
rómversku embættismenn skuld-
ugir, því þeir urðu að kaupa em-
bætti sín, en landstjóraembætti gat
verið mjög átaatasamt, og að lok-
inni þeirri þjónustu lifðu flestir í
bílífi í Róm það sem eftir var æv-
innar. Kúgunin var hóflaus og
mörgum aðferðum beitt, mútur al-
gengar. Þó að landstjórar, sem
grunaðir voru um óleyfilegan fjár-
drátt, væru undirorpnir rómversk-
um lögum, bar það sjaldan við að
þeir væru dregnir fyrir dóm., því
dómararnir voru sjálfir sekir um
hið sama, höfðu flestir verið land-
stjórar og makað þá krókinn vel,
eða að þeir áttu von á að verða
það. Þannig myndaðist vítahringur
ranglætisins.
Og skattlöndin voru pínd svo
sem frekast var unnt. Landstjór-
arnir réðu til verksins skattheimtu-
menn sem tóku hluta af því sem
náðist, en skiluðu hinu, og heimtu
þeir venjulega mikiu meira en þeir
skiluðu. Engir menn voru jafn
hataðir í skattlöndunum, sem skatt-
heimtumenn. íbúar skattlandanna,
sem ekki höfðu nein réttindi róm-
verskra borgara, stóðu varnarlaus-
ir gagnvart þessu ranglæti, enda
áttu þeir sér engan forsvarsmann
sem nokkurs var megnugur.
Frá 63 til 40 f.Kr. hafði Palestína
verið hluti af skattlandinu Syríu,
en árið 40 gerðu Rómverjar það að
konungsríki og fengu Heródes
mikla til að taka þar við konung-
dómi, sem leppur Rómaveldis.
Heródes dó árið 4 f.Kr. og ríkið
skiptist milli sona hans þriggja:
Arkelás hafði suðurhlutann, Heró-
des Antipas miðbik landsins, og
Filippus norðurhlutann. Sá hluti
landsins sem Arkelás hlaut (Júdea,
Samaría og Idúmea), var gert að
einu skatthéraði tveimur árum
síðar. Pontíus Pílatus var þar land-
stjóri í tíu ár.
Árið 27 f.Kr. hafði Ágústus keis-
ari flokkað skattlöndin. í fyrsta
flokki voru þau rem stjórnað var
af fyrrverandi konsúlum eða fyrr-
verandi pretorum og kölluðust
öldungaráðs-skattlönd, þau voru
eldri skattlönd, ríkari og friðsælli
en hin. í öðrum flokki voru skatt-
lönd sem keisarinn úthlutaði le-
gátum (sem líka höfðu verið kon-
súlar og pretórar) og stjórnuðu í
nafni hans. Þessi skattlönd voru
yngri og fremur uppþota og ófrið-
ar að vænta í þeim, og flest voru
þau á útjöðrum ríkisins. í þriðja
lagi voru ný skattlönd sem fengu
landstjóra valinn úr riddaralið-
inu. Þau voru fá, og Júdea var
meðal þeirra. Pontius Pilatus var
sendur þangað árið 26 f.Kr.
Rómversku prókúratorarnir
bjuggu í Cæsereu úti við strönd-
ina og komu ekki til Jerúsalem
nema á hátíðum Gyðinga til að vera
viðstaddir. Meðan þeir dvöldust
þar bjuggu þeir í víggirtri borg
sem hét Antonia og var næst
musterinu.
Hermenn landstjóra Júdeu voru
það sem kallaðist hj álparsveitir,