Úrval - 01.05.1968, Page 62
60
ÚRVAL
En þessir kartöflukóngar hafa
ekki látið staðar numið við venju-
legar fransksteiktar kartöflur,
heldur hafa þeir hleypt af stokk-
unum öllum hugsanlegum tilbrigð-
um af stéiktum kartöflum með
alls konar bragði og af alls konar
lögun, einnig litlum, heilsoðnum
kartöflum, skrældum, með og án
persillu, einnig ofnbökuðum, glóð-
arsteiktum o.s.frv. Einnig eru nú á
boðstólum frystar, ,,hálfsteiktar“
kartöflur. Þær eru hálfsoðnar, og
það þarf aðeins að steikja þær í
90 sekúndur í viðbót, til þess að
þær verði alveg tilbúnar á borðið.
Og einnig hafa komið fram á sjón-
arsviðið léttsaltaðir og kryddaðir
kartöfluhringir til þess að nota í
„snarlmáltíðir".
Arið 1966 notuðu verksmiðjueig-
endur þeir, sem framleiða frystar
kartöflur, rúm 3% milljón pund
af hvítum kartöflum (Solanum
tuberosum) í þessu skyni, en það
ge.ysilega magn svarar til einnar
kartöflu handa hverjum Banda-
ríkiamanni á degi hverjum í 2
mánuði. Milliónir punda eru þar
að auki keyptar af verksmiðjum
þeim, sem framleiða frystar, heil-
ar máltíðir handa hernum, sjúkra-
húsum, skólum, flugfélögum og
fiölda annarra stofnana, sem þurfa
að sjá fjölda manns fyrir mat í einu.
Slíkar stofnanir hafa á undanförn-
um árum keypt stöðugt meiri hluta
af samanlagðri framleiðslu þessara
verksmiðja, og nemur hluti þeirra
nú næstum 70%. Kartöflur, sem
eru þannig tilreiddar í verksmiðj-
um, tilbúnar til neyzlu, hafa að vísu
svolítið minna bætiefnainnihald en
nýjar, ótilreiddar kartöflur, en hin
geysilega og sívaxandi sala þess-
ara tilreiddu kartaflna bendir til
þess, að mikill meirihluti neytenda
álíti, að sá munur sé lítils virði
á móti því að losna við alla vinn-
una við að þvo, skræla og tilreiða
kartöflurnar.
Og þessi bylting hefur einnig
breiðzt út yfir landamæri Banda-
ríkjanna. í fyrra fluttu verksmiðj-
ur þessar út 8V2 milljón pund af
kartöfluflögum, lengjum og bitum,
tilbúnum til notkunar. Kanadiskar
verksmiðjur í Nýja Brunswick-
fylki og á Prince Edwardeyju
flytja út frystar, fransksteiktar
kartöflur til Stóra-Bretlands.
Brezk, hollenzk, svissnesk og
skandinavisk fyrirtæki hafa einnig
byrjað framleiðslu á kartöflum,
frystum og tilreiddum til notkun-
ar. „Markaðsmöguleikarnir í
Evrópu eru alveg gífurlegir“, seg-
ir sérfræðingur einn, sem starfar
á vegum bandaríska landbúnaðar-
ráðuneytisins. „Evrópumenn borða
tvöfalt meira magn af kartöflum
en við hér í Bandarikjunum.“
KAPPHLAUP ALLAN
SÓLARHRINGINN
Ein sú stærsta af þessum nýju
verksmiðjum er Potato Service Inc.
Verksmiðjubákn þetta nær yfir 10
ekrur, og þar er allt eftir nýjustu
tízku. Það er í Presque Isle, mitt
í hinu risastóra Aroostookhéraði,
sem er helzta kartöfluræktarhérað
Mainefylkis, sem er aftur á móti
eitt helzta kartöfluræktarfylki
landsins. í héraði þessu eru fram-
leidd 95% af allri kartöflufram-