Úrval - 01.11.1968, Qupperneq 20
18
ÚRVAL
legt aS menn væru haldnir líísleiða.
Fólki fannst kominn tími til, að
endurmeta öll andleg verðmæti og
endurskipuleggj a stj órnmálaf lokk-
ana, og lögu áður en Hitler kom
fram á sjónarsviðið, voru kenning-
ar Nietzsches farnar að bera ávöxt.
Menn fóru að dýrka valdið og
fyrirlíta lýðræðið, og litu svo á að
tilgangurinn helgaði meðahð.
Heimsmynd Nietzsches, þar sem
hlutverk almúgans var að fórna sér
fyrir ofurmennið, fól í sér fræ ein-
ræðisstefnunnar og skapaði hinni
marghrjáðu þýzku þjóð þrá eftir
sterkum leiðtoga. Hugsjón Niet-
zsches var í rauninni draumur
skálds, sem varð að óhugnanlegum
veruleika. Hið lífsþyrsta ofur-
menni varð Hitler, haldinn óstjórn-
anlegri eyðileggingarfýsn. Kenning-
in um frelsi útvaldra foringja
breyttist í kúgun og þrælkun þýzku
þjóðarinnar. Árás Nietzsches á við-
urkennd verðmæti, siðræn og trúar-
leg, gróf undan siðmenningunni og
réttlæti fullyrðinguna um að mátt-
ur væri réttur. Það er líka ljóst, að
ofurmennið, sem lifir einangrað frá
öðrum mönnum sem herra jarðar-
innar, er í hættu statt, því að ein-
angrun er óeðlileg og vafasöm. Við
verðum að hafa tengsli við með-
bræður okkar og einnig við þann
andlega raunveruleika, sem sam-
svarar dýpstu þrá okkar. Nietzsche
varð vitskertur þegar hann reyndi
að rjúfa þessi tengsli.
Nietzsche fæddist árið 1844 og
var elsta barn sveitaprests nokkurs
í Saxlandi. Báðir foreldrar hans
voru af prestaættum, og heimilis-
lífið einkenndist af mikilli reglu-
semi og strangri trúrækni. Fried-
rich var vel gefinn unglingur og
hlýðinn svo af bar. Það er sagt að
hann hafi einu sinni komið
labbandi heim úr skólanum í aus-
andi rigningu. Þegar móðir hans
spurði hann hvers vegna hann flýtti
sér ekki, þá svaraði hann því til,
að reglur skólans bönnuðu drengj-
unum að hlaupa heim úr skólanum.
Nú var móðir hans orðin ekkja
og fjölskyldan flutti sig búferlum
til næstu borgar þar sem drengur-
inn var eini karlmaðurinn í kvenna-
hópnum á heimilinu. Hann sótti
skóla í borginni til fjórtán ára. ald-
urs, orti ljóð og samdi lög, og eitt
sinn, þegar hann var tólf ára gam-
all, kvaðst hann hafa séð „guð í
allri sinni dýrð“.
Um þetta leyti var hann líka bú-
inn að mynda sér frumlega skoð-
un um hið góða og illa í heiminum,
en samkvæmt henni var þrenningin
gerð af guði föður, guði syni og guði
hinum illa eða djöflinum. Sem bet-
ur fór hafði móðirin ekki hugmynd
um þessi heilabrot drengsins.
Þetta var í rauninni fyrsta upp-
reisn hans gegn trúarskoðunum
heimilisins. Næstu sex árin var
hann í menntaskóla, þar sem agi
var mjög strangur og gerða miklar
námskröfur til nemendanna í grísku
latínu og málfræði.
Árið 1864 hóf hann nám við há-
skólann í Bonn og lagði stund á
málfræði, en þaðan hélt hann til
Leipzig, þar sem hann lauk námi
sínu og var síðan skipaður prófessor
í málfræði við Baselháskóla, aðeins
tuttugu og fjögurra ára gamall.
í Basel brauzt uppreisn Nietzsches