Úrval - 01.11.1968, Blaðsíða 117
LIFANDI DAUÐI TIL SÖLU
115
arlausu. Gerorgiu-Jack bjóst við
skilyrðislausri hollustu á móti. Svik
máttu alls ekki koma til greina. Og
fyrst og fremst bjóst hann við því
af starfsmönnum sínum, að þeir
væru þögulir sem gröfin gagnvart
lögreglunni. Til hennar mátti ekkert
leka. Hann hét því, að uppljóstrari
mundi bráðlega finnast í göturæs-
inu skorinn á háls.
KONUNGUR HINNAR SKIPU-
LÖGÐU GLÆPASTARFSEMI
Kjarninn í eiturlyf j ahring Georg-
iu-Jacks, felustaðurinn og „rann-
sóknarstofan", var ekki á vitorði
götusalanna. Þeir komu þar hvergi
nærri. Hvenær sem Jack keypti nýtt
kíló, hitti hann þá Clee og Skeetch
heima í íbúð Mary Lou Lincoln,
uppáhaldsvinkonu Jacks. Útihurð-
inni var tvílæst og settur slagbrand-
ur fyrir hana. Síðan var einlitur
vaxdúkur breiddur yfir mitt rúm
Mary Lou, og félagarnir þrír tóku
síðan til óspilltra málanna.
í vikunni höfðu þeir Clee og
Skeetch keypt samtals 245 únsur
(6 kg 985 grömm) af mannite. Það
er hægðalyf fyrir börn, sem lítur út
eins og þurrmj óikurduft. Einnig
höfðu þeir keypt 35 únsur (494
grömm) af kíníni, sem þeir höfðu
safnað saman í ýmsum lyfjabúðum.
Þessum efnum var síðan blandað
vandlega saman við heroinið í stóru
eldhússigti. Sú vinna var ósköp
leiðigjörn. Enginn þeirra kærði sig
um að verða eiturlyfjaneytandi, svo
að þeir bundu vasaklútum fyrir vit
sér. Gluggana varð að hafa vand-
lega lokaða, hversu heitt sem var í
veðri, því að örlítil gola gat auð-
veldlega dreift hinu loftkennda,
létta dufti.
„Flýtið ykkur frá rúminu, ef ykk-
ur fer að kitla,“ sagði Jack við þá
í aðvörunarskyni, „því að það kost-
ar ykkur 10.000 dollara, ef þið
hnerrið rétt hjá heroininu!“
Blandan var sigtuð tvisvar á vax-
dúkinn, og síðan var búið vand-
lega um hana í glassinepokum, og
var innihald hvers poka Vs úr únsu
(um 3Vz grömm) Þegar þessu starfi
var lokið, hafði Georgiu-Jack a.m.k.
2500 poka í fórum sínum, og brúttó-
söluverð þeirra yrði 50.000 dollarar.
Vikugróðinn var mismunandi eftir
ástandi markaðsins hverju sinni, en
venjulega fór nettógróði Jacks fram
úr 29.000 dolluruum á viku.
Kílóið, sem Georgiu-Jack var nú
búinn að blanda og tilbúið var til
götusölu, hafði að geyma fyrsta
heroinið úr sendingu Levonians sem
selt yrði neytenaum. En það kíló
var mjög ólíkt ópíumkílóinu, sem
Levonian hafði borgaði ópíumbónda
í Tyrklandi 350 dollara fyrir. Biani-
eiturlyfjahringurinn hafði tekið Vs
úr hverju kílói Levonians og bætt
öðru efni í staðinn, og Angie hafði
síðan drýgt heroinblönduna um
fjórðung með því að setja mjólkur-
sykur í staðinn. Hefði Georgiu-Jack
einnig haft þessa % hluta heroins-
ins, hefðu þeir þýtt aðra 30.000 doll-
ara í sölu, og þá hefði brúttósölu-
verð kílósins komizt upp í 80.000
dollara. Og setjum sem svo, að allir
eiturlyfjaneytendur drýgðu efnið í
pokunum hans Georgiu-Jacks tvisv-
ar eða þrisvar og seldu þá síðan
aftur, sem þeir gætu vel gert, þá
mundi ópíumkílóið hans Levonians,