Úrval - 01.11.1968, Blaðsíða 103
LIFANDI DAUÐI TIL SOLU
101
armestur þeirra var verzlunarfélagi
hans, grófgerður maður á sextugs-
aldri, Frank Merlotti að nafni. Biani
gætti þess að kynna Levonian að-
eins sem „Francois“, vin sinn frá
Marseille.
Levonian hélt síðan brátt brott
og afþakkaði kurteislega boð þeirra
um að drekka með þeim glas. Hann
gekk fram hjá lífverðinum, sem
stóð enn við dyraþrepin á leigu-
kassanum. Svo hélt hann upp í bæ
í leigubíl. Þaðan tók hann neðan-
jarðarlest til Kewgarða. Trigano
beið hans þar með peningana, og
félagarnir tveir voru í sjöunda
himni yfir velgengni sinni.
En Levonian var ekki allt of ör-
uggur um sig. Enn virtist sending-
in, sem hann hafði flutt með sér
9000 mílna leið allt frá valmúa-
ökrum Tyrklands, vera óhult. En
einhver af eiturlyfjanjósnurum
lögreglunnar gæti komizt á sporið
hvenær sem væri.
300 LEYNILÖGREGLUMENN
VIÐ UPPLJÓSTRUN
EITURLYFJAMÁLA
Snjall kaupmaður, sem vill stofna
til viðskipta á nýju sölusvæði, byrj-
ar á því að rannsaka markaðinn
nákvæmlega og allt það, er snertir
samkeppendurna. Áður en Levoni-
an fór frá Marseille, hafði honum
verið skýrt ýtarlega frá aðalhætt-
unni, sem verða mundi á vegi hans.
Hætta sú var lögreglan og þá al-
* Þessi stofnun hefur nýlega verið
skirð upp og ber nú heitið Stofnun
eiturlyfja og hættulegra lyfja og
heyrir undir Dómsmálaráðuneytið.
Starfssvið hennar hefur nú verið
veg sérstaklega Eiturlyfjastofnun
ríkisins.* Hann hafði kynnt sér
mjög vandlega öll eiturlyfjaákvæði
Bandaríkjanna, og vinir hans frá
Korsíku höfðu skýrt honum frá
öllu því, sem þeir vissu um stefnu,
meginreglur og starfsaðferðir þær,
sem giltu í framkvæmd eiturlyfja-
laganna vestra.
Mennirnir, sem kaupa og selja
heroin í Bandaríkjunum, óttast
þessa opinberu stofnun mjög mik-
ið. Þeir ala jafnan með sér grun
um, að „ríkislöggur“ séu á hverju
strái, enda hafa þeir líka ærna
ástæðu til þess að vera áhyggju-
fullir. Um 18% allra þeirra manna,
sem eru núna í ríkisfangelsum,
voru sendir þangað af leynilög-
reglumönnum Eiturlyfjastofnunar
ríkisins. Á meðal þeirra eru nokkr-
ir af alræmdustu höfuðpaurunum
á sviði skipulagðrar glæpastarfsemi,
svo sem Vito Genovese, Stóri-John
Ormento, Harði-Carmine Galente
og Joe Valachi.
í rauninni er Eiturlyfjastofnunin
ein hin minnsta ríkisstofnun, sem
starfar að því að halda uppi lögum
og rétti og að rannsóknum afbrota-
mála. Á hennar vegum eru um
300 lögreglumenn, en aftur á móti
eru 6500 innan Alríkislögreglunnar.
En yfirstétt Mafiunnar eða öðru
nafni Costa Nostra í andaríkjunum
veit að ofur vel, að „eiturlyfjalögg-
an“ einbeinir mestallri athygli
sinni að þeim, fremur en að sjálf-
fært út og nær nú einnig yfir ólög-
lega verzlun með slík lyf, svo sem
amphetamin, marijuana, benzedrine
og barbiturlyf auk eiturlyfja, sem
unnin eru úr ópium.