Úrval - 01.11.1968, Blaðsíða 79
NEYÐARHJÁLP AÐ NÆTURLAGI
77
okkur ljóst, að þegar einhver leitar
til okkar vegna alvarlegs sjúkleika
eða slyss, þá er ekki hægt að fara
að byrja á því að heimta skilríki.
Honum er gert jafnhátt undir höfði
og öðrum. Nú er öllum veitt hjálp,
sem þarfnast hennar fljótt.
Hvað starfið er mikið við neyð-
arhjálpina í Madrid sézt bezt á
nokkrum helztu yfirlitstölum. I
miðri viku fær La Paz um 310 beiðn-
ir, en um helgar verða köllin allt
að þúsund á nóttu. Síðan neyðar-
hjálpin var stofnuð árið 1964 hefur
hún annað eitthvað .2 milljónum
beiðna.
„Sá er munurinn hjá okkur hér
á Spáni og því sem tíðkast annars-
staðar,“ sagði dr. Maluquer, „að
læknar neyðarhjálparinnar hér eru
fastráðnir á kaup hjá almannatrygg-
ingum“. Þar sem hinir níutíu og níu
starfandi læknar hjálparinnar fá í
byrjunarlaun um 20.000 peseta á
mánuði, eru þeir vel settir efnalega.
Sumir læknanna ætla jafnvel að
gera sér þessa grein að ævistarfi.
Einnig í Barcelóna, Valencía, Bil-
baó, Sevilla og Saragossa starfar
neyðarhjálp eftir fyrirmynd frá Ma-
drid.
„Ég fæ hreint og beint ekki skil-
ið hvernig nútímaborg getur kom-
izt af án þessa fyrirkomulags,“ sagði
dr. Gili Malquer, og því til árétt-
ingar sagði hann mér frá því sem
bar til tíðinda hjá þeim nótt eina
árið 1965. Úr einum borgarhlutanum
fóru allt í einu að berast beiðnir svo
tugum skipti. Á fáeinum klukku-
stundum fundu læknar þarna mat-
areitrun hjá meira en fjörutíu
sjúklingum. Læknavagnar og
sjúkravagnar skunduðu til hjálpar,
og öllum þessum fjörutíu varð
bjargað. Hefði engin neyðarhjálp
verið til, þá er ekki að vita hversu
margir hefðu látið lífið.
Það er eitt af mikilsverðustu við-
fangsefnum þeirra sem stjórna, að
sjá um að læknishjálp sé fáanleg,
einnig á þeim tíma sem erfitt er
að ná í lækna. Sem betur fer er
nú að vakna skilningur á því í
mörgum stórum borgum — og einn-
ig í héruðum, þar sem framfaraandi
er ríkjandi — að jafna þurfi álag-
inu sem er á læknunum, og bæta
úr þörfum almennings, þannig að
gagn verði að og öllum til góðs.
Mi
Það eru óskrifuð lög meðal trúða i fjölleikahúsum, að hver trúður
verði að hafa sérstakt „vinnuandlit" og má enginn líkja eftir öðrum
í því efni. Byrjan.di í greininni getur svo sent teikningu af fyrirhug-
uðu „vinnuandliti" sínu til Jaeks Goughs, ritara Alþjóðlega fjölleika-
hússtrúðakklúbbsins, en hann málar andlitið á egg og ber það svo
saman við hundruð annarra „eggandlita11 í safni sínu i Croydon í
E'nglandi. Ef það reynist vera um stælingu að ræða, þá ráðleggur
Gough byrjandanum að skapa sér nýtt „vinnuandlit".
The Christian Science Monitor.