Úrval - 01.11.1968, Blaðsíða 68
Helgisagan
um
Masada
,,Hátt uppi í þessu forna vvrki
Júdeu kaus hópur Gyðinga
eitt sinn dauðann heldur en
að láta hneppa sig í þrœldóm.
Þar sem spennandi fornleifa-
fundir staðfesta hetjudáðir
þeirra, verður Masada
táJm um stolt og Jiugrekki
nýrrar þjóðar.
Eftir PAUL FRIGGENS
Er ég var að klifra í
eyðimerkurhitanum
upp í hin háu kletta-
virki, sem gnæfðu yfir
auðnir Júdeu og Dauða-
hafið, kom ég nýlega að einum af
hinum miklu fornleifafundum vorra
tíma — Masada.
Þessi bátlaga klettur, sem er 1350
feta hár, er meðal furðulegustu og
mest spennandi staða í heimi. „Fyr-
ir næstum 2000 árum,“ sagði ísra-
elski leiðsögumaðurinn minn, „átti
hér mjög undarlegt og hetjulegt
viðnám sér stað.“ Síðan sagði hann
mér hina áhrifamiklu sögu um leið
og hann sýndi mér rústirnar.
Saga Masada hefst fyrir Krists
burð. Um það bil árið 35 f. Kr.
byggði Heródes mikli, konungur
Gyðinga þar stórkostlegt kastala-
vígi. Þar eð hann var harðstjóri og
fullur grunsemda, óttaðist hann
uppreisn sinnar eigin þjóðar, og
ennfremur að Markús Antoníus,
landstjóri Júdeu, gæfi Kleópötru,
drottningu Egypta, Júdeu. Hann
skipaði herjum sínum að reisa gríð-
arstóran varnarvegg, með 37 varð-
turnum, sem innilokaði allan fjalls-
tindinn, er var 23 ekrur. Einkaað-
setur hans var stórkostlegur, þriggja
hæða kastali, sem var höggvinn í
þverhnípið í Norður-Masada. Óhóf-
leg baðherbergi, skreytt mósaikflís-
um, herbergi með súlnaröðum og
veggmyndum sáu konunginum fyr-
ir þægindum og skjóli fyrir eyði-
merkurvindum og sól. Þarna átti
Heródes sínar ánægjustundir. Hann
dó árið 4 f. Kr. og lét rómverskum
hersveitum eftir kastala sinn.
Árið 66 gerðu Gyðingar uppreisn
eftir 100 ára kúgun Rómverja. Róm
sendi 60.000 manna herlið, sem,
eftir fjögurra ára miskunnarlausan
hernað, bældi uppreisnina niðui-.
Rómverjar rændu þá og brenndu
Jerúsalem, hentu börnum inn í log-
ana og sendu nokkra þeirra, sem
eftir lifðu sjóleiðis til Rómar. þar
sem þeir voru látnir ganga um göt-
urnar í hlekkjum.
Meðal uppreisnarmannanna, sem
ennþá veittu viðnám, var hópur of-
stækisfullra ofsatrúarmanna, næst-
um 1000 talsins; menn, konur og
börn, sem hörfuðu inn í auðnir Júd-
eu undir forystu Eleazar ben Ya'ir
og lögðu Masada undir sig. En þeir
höfðu skipt kastala Heródesar, sem
nú var að hrynja, niður í bráða-
birgða mannabústaði, buðu ofsatrú-
armennirnir hermætti Rómverja
byrginn í þrjú ár, þótt ótrúlegt
megi virðast. Að síðustu voru 5000
menn úr tíundu herdeild Rómverja,
sem naut mikils álits, undir stjórn
Flaviusar Silva, skattlandsstjóra
Júdeu, sendir til að þurrka út
hreiður hinna þrjózku uppreisnar-
manna. Silva umlukti fjallið til að
loka þá inni, en þeir neituðu enn
að gefast upp.
Silva hafði ákveðið að gera eina
aðalárás frá vestri og skipaði að
láta gera geysistóra virkisbrekku,
sem næði upp í hæðir Masada. Þús-
undir veikra og sveltandi ísraelskra
stríðsfanga voru neyddir til að
66
Readers Digest
67