Úrval - 01.11.1968, Blaðsíða 115
LIFANDI DAUÐI TIL SÖLU
113
Merlotti hafði þegar gert allar
nauðsynlegar ráðstafanir viðvíkj-
andi afhendingu þessari í símtali
við Tony nebba. Nokkrum augna-
blikum eftir að Angie var kominn
upp í íbúðina, ók Tony bíl sínum
inn í bílageymslu hússins. Hann
lagði bíl sínum við hliðina á kádil-
jáknum og það tók hann aðeins 15
sekúndur að koma 3 kílóum af
heróini Levonians fyrir í farang-
ursgeymslunni á bíl Angies. Hann
skellti síðan lokinu í lás og gaf
Merlotti síðan tafarlaust merki um,
að afhending hefði nú farið fram
án nokkurra vandkvæða. Merki
þetta gaf hann með því að hringja
á dyrabjöllu Merlottis í dyrasím-
anum niðri. Svo ók hann tafarlaust
burt.
Nokkrum augnablikum síðar kom
Angie aftur niður í lyftunni, steig
upp í bíl sinn og lagði af stað til
staðar þess, sem hann seldi hero-
inið á. Það var blómabúð í austur-
hluta Bronxhverfis í New York.
Hann bjóst við að geta selt eitt kíló-
ið þegar síðdegis sama dag bezta
viðskiptavini sínum. Það var meiri
háttar eiturlyfjasmásali í Harlem,
maðurinn sem eiturlyfjaneytendur
kölluðu Georgiu-Jack.
2500 POKAR AF „SPRENGIEFNI“
Hann strigsaði eins og hetja um
Harlemhverfið, 6 fet á hæð, og
sveiflaði til hrikalegum öxlum.
Hann var klæddur skrautlegum, á-
berandi fötum, og var illskuglampi
í augum hans. í hinum svörtu ein-
angruðu negrahverfum í Cleveland,
Chicago og New York hafði hann
lært að nota hnefana, hnúajárn,
reiðhjólakeðjur, hnífa og að lokum
byssur. Hann var orðinn þjófur 11
ára að aldri, vopnaður ræningi á
strætunum 17 ára, og hann lenti í
fangelsi í fyrsta sinn 22 ára gamall
fyrir vopnað rán.
29 ára að aldri reyndi hann að
komast undan eftir annað vopnað
rán, sem hann hafði tekið þátt í.
Og þá skaut hann á lögregluþjón á
flóttanum og særði hann. Það kost-
aði hann 14 ár í Sing Sing, og að
þeim tíma liðnum tók hann flestum
fyrrverandi föngum fram, hvað
snertir alla vitneskju um undir-
heima stórborganna og starfsaðferð-
ir glæpamanna. Hann var risavax-
inn maður, um 220 pund á þyngd,
mesta hörkutól og mjög ýtinn. Hann
sveifst einskis til þess að. ná því,
sem hann vildi fá. Hann framdi rán
með Clee bróður sínum suður í Mi-
ami, og að því búnu sneri hann aft-
ur til Harlem.
Eftir 6 mánaða eiturlyfj asölu var
hann orðinn ríkur maður. Hann hélt
tvær ástmeyjar, sem bjuggu saman
í einni íbúð. Hann ók nýjum, fjólu-
bláum kádilják. Hann keypti aðeins
silkinærföt og gekk aldrei í sömu
jakkafötunum tvo daga í röð. Þessi
svarti, fyrrverandi fangi græddi
mest allra eiturlyfjakaupmannanna
og tók enda á sig mestu áhættuna,
meiri en allir aðrir, sem verzla með
ólögleg eiturlyf, hvort sem það eru
Tyrkir, Líbanonsbúar, Sýrlendingar,
Armeníumenn, Korsíkubúar eða
amerískir Mafiumenn.
Georgiu-Jack var miðlari, þ,e.
eins konar heildsali, sem birgir upp