Úrval - 01.11.1968, Page 44

Úrval - 01.11.1968, Page 44
42 ÚRVAL þeirra, efnasamsetningu, þyngd, hitastig, fjarlægð þeirra héðan af jörð og sín á milli, og hraðann á flugi þeirra um geiminn. En viljum við reyna að setja okkur þessa hluti fyrir hugskotssjónir, þá hljótum við að leggja á þá jarðneskan mæli- kvarða, hvort sem okkur líkar bet- ur eða verr. En auðvitað villir þetta fyrir manni. Það er jafnvel ekki allskostar auðvelt að hugsa sér að jörðin sé hnöttur. Sólin, sem við hugsum okkur hnattlaga, og auð- vitað er hún það, gæti falið í sér 1.3 milljónir af hnöttum jafnstórum jörðinni, og þvermálið er 109-falt. Maður sem stendur hjá Eiffelturni, má virðast mjög lítill í samanburði við turninn, en í samanburði við jörðina er hann svo miklu minni, að nemur einum á móti 7.5 milljónum. Þvermál sólarinnar er aftur á móti 1.391.000 km! Hún er í 150 milljóna kílómetra fjarlægð héðan. Sú flug- vél sem mestum hraða hafði náð fram í júní 1961 flaug 5797 km á klukkustund. Með slíkum hraða nætur og daga mánuð eftir mánuð mundi flugvélin þurfa tvö ár og 344 daga til að komast alla leið til sól- arinnar. En eftir að Gagarín flaug Vostok umhverfis jörðu (12. apríl 1961) breyttist þetta viðhorf til muna, og Vostok hefði komist þessa vegalengd á 224 dögum. Ljósið fer 300.000 km á sekúndu, það er rúmar 8 mínútur á leiðinni milli sólar og jarðar og rúma sekúndu milli jarð- ar og tungls, en frá næstu fasta- stjörnu og hingað er það 4.3 ár á leiðinni, frá Síríusi 9 ár, frá Betel- geuse h.u.b. 270 ár. Fjarlægustu vetrarbrautir sem unnt hefur verið að taka myndir af (á afarnæmar ljósmyndaplötur í stjörnusjám) eru í h.u.b. fimm þúsund milljón ljós- ára fjarlægð! Og ljósið fer 9.463.000. 000.000 km á ári. Það mætti nægja til skilningsauka á stærð sólarinnar að virða fyrir sér fjarlægð tunglsins frá jörðu. Hún er 385.000 km, en þetta er rúmlega hálft þvermál sólarinnar. Með öðr- um orðum, þvermál sólarinnar er nálega jafnt þvermálinu af braut tunglsins umhverfis jörðu. Rannsóknir á yfirborði sólarinnar hafa leitt furðulega hluti í ljós. Fyrrum var álitið að sólin væri öll ljómandi og flekklaus, en þegar hún er skoðuð í firðsjá, sést, að því fer fjarri að svo sé. Það sem þá blasir við, er líkt vellandi grautarpotti, og er grauturinn næsta kekkjóttur, en þess er að gæta, að hver „kökkur“ er á stærð við allt Frakkland eða Spán. Ef til vill er þarna um að ræða ský úr loftkenndu efni, sem þyrlast með ofsahraða. En auk þessara ,,kekkja“ má sjá aðra svart- ari og stærri, hina frægu sólbletti, sem ýmist eru einir sér eða margir í hóp, þeir breyta einnig um stærð og lögun og geta orðið meira en 300.000 km að þvermáli. Galilei varð manna fyrstur til að finna þá, og mun hafa séð þá í sjónauka sín- um. Hinir stærstu sjást með berum augum þegar sól er að setjast, og í gömlum annálum frá tíma Karls mikla er getið um þetta. Þeir eru enn sem komið er, vísindamönnum ráðgáta. Helzt er haldið að þetta séu segulsvið, þar sem hitastigið er lægra en á hinum pörtunum af yf- irborði sólarinnar. Það er mjög eft-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.