Úrval - 01.11.1968, Side 45

Úrval - 01.11.1968, Side 45
SÓLIN 43 irtektarvert að þeir skuli aukast fram úr öllu valdi á ellefu ára fresti, og má þess víða sjá vott í náttúrunni hver áhrif það hefur. T. d. má finna merki um þetta í ár- hringum trjáa. Þetta er svo greini- legt, að af því má marka ártöl. Ým- islegt annað þykir næsta furðulegt. Þegar sólblettir eru sem mestir er sagt að búast megi við miklu um- róti í þjóðfélögum, byltingum, taumleysi, spillingu, en þessu er varlega trúandi, því erfitt er að finna því stað svo öruggt megi telj- ast. Annað einkenni í sólinni, sem at- hugavert er, eru logatungur þær sem að jafnaði slengjast út frá henni (prótúberansar), en þetta eru glóandi lofttegundir, sem geta kom- izt í allt að því hálfrar annarrar milljónar km fjarlægð frá móður- hnettinum, en hníga jafnskjótt aft- ur í hið sama far. Auðvitað er auð- veldast að athuga þetta á jöðrun- um, ekki sízt þegar almyrkvi er á sólu. Engin sól hefur verið athuguð jafn gaumgæfilega sem sólin, enda hægast um vik, sakir nálægðar hennar. Almenningi er gjarnt til að álíta, að stjörnufræðingar hefji þá athuganir sínar, þegar rökkrið fær- ist að. Mönnum er ekki tamt að skoða sólina í því ljósi, að hún sé ein af ótal stjörnum, og að flestar þeirra séu henni næsta líkar. Auk þess hverfa stjörnurnar sjónum þegar sól er upp komin, þær hverfa fyrir ljóma hennar. En sú stjarna sem hér er um að ræða, verður, eins og gefur að skilja, aðeins at- huguð að degi til. Hvenær sem hún myrkvast að meira eða minna leyti, af því að tunglið gengur fyrir hana, er uppi fótur og fit meðal vísinda- manna. Og þegar almyrkvi gerist, þá þykja afbragðs skilyrði til at- hugana. Og þá sést „kóróna“ sólar- innar vel — logatungurnar, sem slöngvast upp frá henni og falla niður aftur, þær blika silfurhvítar, og þessi „kóróna“ hefur hitastig, sem nemur tveimur milljónum gráða á celsíus, og er miklu heitara en yfirborð sólarinnar, en það er að því er bezt er vitað, aðeins sex þúsund gráður á celsíus. Sólin virðist við athuganir vera bjartari í miðju en til jaðranna, enda blasir miðbikið betur við. „Dældirnar", þar sem heitara er, lýsa bjartara skini. Af sólblettun- um má marka snúning hnattarins um sjálfan sig, en það tekur sólina 25 daga að fara einn snúing. Hún snýst öfugt við það sem vísar á klukku gera, eða frá vestri til aust- urst, svo sem fylgihnettir hennar einnig. Því innar sem dregur í sól- ina, því heitari verður hún, allt að því 15 milljón gráður innst, en þar er loftþrýstingurinn 100 milljón- faldur á við loftþrýstinginn hér á jörð. Lofttegundirnar þéttast eftir því sem innar dregur, og verða að síðustu sjöfalt þéttara en gull. Þeg- ar svo er komið geta atómin ekki lengur haldizt við, rafeindahjúpur- inn, sem um þau lykur, rifnar, raf- eindirnar stökkva burt. Okkur vantar nú skáld, sem sé þess megn- ugt að lýsa þessum ósköpum, ann- an Dante, en það er fjarri því að í þetta eldsvíti komist nokkur mað-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.