Úrval - 01.11.1968, Side 104

Úrval - 01.11.1968, Side 104
102 ÚRVAL um eiturlyfjaneytendunum eða vesælu eiturlyfjasölunum, sem halda sig á strætum borganna. Höf- uðpaurarnir vita það ofur vel, að það er hægt að ákæra þá fyrir sam- tök um sölu eiturlyfja, jafnvel þótt heroin finnist kannske aldrei í fór- um þeirra sjálfra. Síðasta áratug- inn hefur Eiturlyfjastofnunin náð í yfir 200 meiriháttara glæpamenn í slíkum stórmálum, þar sem ákær- an hefur hljóðað upp á „samsæri um sölu eiturlyfja". Þar að auki vita höfuðpaurar hinnar skipulögðu glæpastarfsemi það ofur vel, að fangelsisdómar fyrir eiturlyfjaaf- brot eru harðir: 5 til 20 ár fyrir fyrsta brot og 10 til 40 ár fyrir end- urtekin brot. Og dómana verður þar að auki að afplána að fullu, án þess að það komi til greina, að fangi sé látinn laus gegn drengskaparlof- orði eða til reynslu vegna góðrar hegðunar. Af þessum ástæðum ákváðu höf- uðpaurar Mafiunnar eitt sinn að hætta algerlega öllum eiturlyfja- viðskiptum. Á fundi sínum í Apala- chin í New Yorkfylki árið 1957, sem nú er orðinn frægur í sögu glæpamála, samþykktu þeir og gáfu út fyrirskipun um, að sérhver með- limur Mafiunnar skyldi hafa 6 mánaða frest til þess að losa sig við eiturlyf, er hann kynni að hafa með höndum, og hætta algerlega öllum eiturlyfjaviðskiptum. Sumir þeirra gegndu ekki þessum úrskurði, og þeir voru drepnir án nokkurrar miskunnar. En er tímar liðu fram, hófu aðrir eiturlyfjaviðskipti að nýju af mikilli varkárni í fyrstu. Gróðinn, sem í boði var, var blátt áfram of freistandi til þess, að þeir gætu staðizt mátið. Og svo kom að því, að. málamiðlun náðist á þessu sviði. Mafian átti framvegis aðeins að verzla með heroin í stórum stíl, en ekki stunda nein minni háttar viðskipti. Hún skyldi hafa alger yf- irráð yfir uppsprettum framboðsins í Evrópu og nálægari Austurlönd- um og tengslum við Bandaríkin. En aðrir tóku svo við dreifingu og sölu eiturlyfjanna, einkum svertingjar og Puerto Ricanar í New York, sem voru reiðubúnir til þess að hætta á harða fangelsisdóma vegna gróð- ans. Levonian skildi þessar aðstæður, og hann vissi, að lög þau, sem höfðu mest að segja, hvað snerti með- ferð og sölu eiturlyfja í Bandaríkj- unum, voru Harrisonlögin. Þessi lög eru í grundvallaratriðum ólík öðrum lagaákvæðum, sem gilda um glæpi. Og það er aðeins hægt að skilja þau með því að kynna sér hinar sagnfræðilegu ástæður fyrir því, að þau voru samin. Rétt eftir aldamótin var það algerlega lög- legt að selja, eiga og nota morfín og ópíum í Bandaríkjunum. Aðal- efnið í hóstasaft þeirri, sem þá var framleidd, var einmitt ópíum. Og allir gátu keypt morfínpillur í lyfjabúðum á 25 cent pilluna. Eit- urlyfjaneyzla jókst hröðum skref- um, og fleiri og fleiri urðu háðir þessari nautn. Samkvæmt lækna- rannsókn, sem var framkvæmd á þessum árum, var 1 af hverjum 400 Bandaríkjamönnum forfallinn morfínneytandi. (Enginn reyndi að telja þá, sem svolgruðu ópíum- hóstasaftina. Heroinpillur komu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.