Úrval - 01.11.1968, Page 114
12
ÚRVAL
legri íbúð í Eystra 63. Stræti á
Manhattan. Merlotti hafði ekki ver-
ið við eina íjölina felldur um dag-
ana. Hann hafði verið peningafals-
ari. Einnig hafði hann rekið tvo
fjárþvingunarhringa og verzlað með
stolnar whiskysendingar. Svo hafði
hann að lokum aflað sér fótfestu í
eiturlyfj ahring Bianis og fengið þar
starf við sitt hæfi. Stóri-Jói var
samt hinn raunverulegi eigandi
hringsins. Það var hann, sem hafði
öll samböndin erlendis. hann sá
einnig um innkaupin. Og það var
hann, sem tók ákvarðanir um
blöndun og styrkleika þess heroins,
sem selja skyldi. Merlotti var bara
sölustjóri Bianis. Hann seldi aðeins
í kílóatali, eitt eða fleiri kíló í senn.
Og hann seldi völdum viðskipta-
vinum. Og salan fór fram í einrúmi
heima í íbúð hans.
Það voru ýmsir eiturlyfjasalar frá
mörgum borgum, sem keyptu af
Merlotti. Og tveir af beztu föstu
viðskiptavinunum heimsóttu hann
einmitt í íbúð hans í Eystra 63.
Stræti, skömmu eftir að Tony nebbi
var búinn að blanda heroin Levoi-
ans og pakka því að nýju. Annar
þeirra var Nicolas Golino, sem bað
um hálft kíló til þess að selja nýjum
viðskiptavini, Telano að nafni.
Merlotti varð bálreiður.
„Nú, sagðirðu honum ekki, að við
seljum aldrei minna en kíló í einu?
Það er heimskulegt af þér að semja
um kaup á hálfu kílói. Það eru ein-
mitt þannig músarholuviðskipti,
sem geta komið þér í vandræði.“
En Golino hélt áfram að biðja
hann. „Þetta er bezti maður,“ sagði
hann. „Hann ætlar sér að kaupa
3—5 kíló reglulega framvegis, en
hann vill bara fara varlega í fyrsta
skipti. Mér geðjast að því sjónar-
miði. Hann kemur vel fyrir, og ég
treysti honum.“
Að lokum samþykkti Merlotti að
selja'honum hálft kíló og gerði ráð-
stafanir viðvíkjandi afhendingu
vörunnar. Tony nebbi átti að af-
henda vöruna í gistihúsi einu í
New York. Merlotti sá aldrei né
snerti eitt korn af heroini sjálfur.
Hinn viðskiptavinurinn, sem
heimsótti Merlotti, kom akandi til
íbúðar hans í kádiljálk. Hann ók
kádiljálknum inn í neðanjarðar-
bílgeymsluna við bakhlið hússins.
Hann lagði bílnum á bás, sem var
merktur 7-K, sem var númerið á
íbúð Merlottis. Hann steig út úr
bílnum, læsti öllum fjórum hurðum
hans og opnaði lokið á farangurs-
geymslunni, sem hafði verið læst.
Hann lyfti því örlítið, en þó ekki
svo, að það sæist inn í farangurs-
geymsluna. Svo steig hann inn í
lyftuna og fór upp í íbúð Merlottis.
Þetta var Angie Minetti, og var
samband hans við Mafiuna alveg
sérstakt. Þótt hann lyti yfirstjórn
þeirra Bianis og Merlottis, þá var
hann einnig sjálfstæður eiturlyfja-
sali, sem hafði komið á laggirnar
eiturlyfjasölu með blessun Merlott-
is. Hann var einn af stærstu eitur-
lyfjasölunum í negrahverfinu Har-
lem í New York og var nú kominn
til þess að greiða Merlotti 35.000
dollara fyrir síðustu sendinguna af
heroini, sem hann hafði selt, en
jafnframt ætlaði hann að ná í þrjú
kíló í viðbót.