Úrval - 01.11.1968, Page 127

Úrval - 01.11.1968, Page 127
LIFANDI DAUÐI TIL SÖLU 125 Leynilögreglumennirnir hófu nú gaumgæfilega leit í íbúðinni, en þeir Biani og Merlotti sátu á legu- bekknum í dagstofunni á meðan. Síðan voru leynilögreglumónnum úti á Lönguey gefin fyrirmæli um það í talstöð að handtaka Tony nebba og föður hans. Þær handtök- ur fóru fram fyrir dögun, og þar fundust rúm 17 pund af heroini. Er hér var komið sögu, höfðu leynilögreglumennirnir í íbúð Mer- lotti fundið skriflegar sannanir um viðskipti Biani í skrifblokkum, á lausum bréfmiðum og í þrem heim- ilisfangabókum í skrifborðinu í dag- stofunni. Þetta var yfirleitt allt skráð með eins konar viðvanings- dulmáli! Næst tölum gat að líta upphafsstafi og gælunöfn. Tölurnar táknuðu augsýnilega það magn heroins, sem selt hafði verið við- komandi, eða upphæð greiðslna eða upphæðir þær, sem viðkomandi skulduðu enn. Bækurnar höfðu að geyma nafnalista yfir marga menn víðsvegar um landið, sem brotið höfðu eiturlyfjalögin, og þar að auki ókunn nöfn, og hélt Eiturlyfjastofn- unin áfram rannsókn nafna þessara næstu mánuðina. Pelas leynilögreglumaður leit yf- ir bækurnar á staðnum. Aðalstarf hans innan Eiturlyfjastofnunarinn- ar var fólgið í samræmingu aðgerða. Hann talaði mörg tungumál og las að staðaldri skýrslur starfsmanna stofnunarinnar víðs vegar að úr heiminum og leitaði þar að vísbend- ingum og sönnunum um eiturlyfja- viðskipti, sem teygðu sig langt út fyrir endimörk þeirra 16 landssvæða sem heyrðu undir umsjón Eitur- lyfjastofnunarinnar. Hin þjálfuðu augu Pelas rákust á nafnið Fran- cois í einni af bókunum. Þar stóð það eitt sér, og við hlið þess var símanUmer. Pelas minntist strax skýrslu, þar sem nafn Francois hafði birzt í tengslum við Bianimálið. Þetta símanúmer mundi líklega ekki hjálpa stofnuninni til þess að finna rétta manninn, vegna þess að það var líka á dulmáli. En Merlotti hafði líka skrifað rétta númerið á bréfmiða, sem fannst í sömu skúffu. Fyrir framan það númer stóð að- eins stafurinn „F“. Það var alveg sama númerið og númer Francois í bókinni, að því undanskildu, að tveir öftustu tölustafirnir höfðu báðir verið hækkaðir um einn. Miðstöð stofnunarinnar í New York var skýrt frá báðum þessum númerum, og þar sendi einn starfsmannanna símafélaginu neyðarbeiðni um upp- lýsingar um nöfn og heimisisfang hverra þeirra, sem þessi númer væru skrifuð hjá. Meðan starfsmennirnir biðu svars símafélagsins, kom Mike Telano á vettvang. Var honum nú skýrt frá því, sem gerzt hafði. Hann varð mjög glaður við; er hann frétti um allar þær upplýsingar, sem fundizt höfðu í íbúð Merlotti. Síðan fór hann að gera áætlun ásamt hinum mönnunum um árás á Francois. Þá grunaði, að hann væri meiri háttar eiturlyfjaseljandi frá Evrópu. Vand- inn var því fólginn í því, að hand- sama hann á réttan hátt. Það þurfti að koma honum að óvörum og handtaka hann með saknæmar sannanir í fórum sínum. Þeir Tel- ano og Pelas höfðu fundið ráð, sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.