Úrval - 01.01.1973, Page 8

Úrval - 01.01.1973, Page 8
6 Glenda gat alls ekki haldið sér vakandi lengur, þegar lyngdi að nýju. Hún hallaði vanganum að öldunum, likt og þær væru koddi, og blundaði. öndunarpipan stóð upp úr sjónum og færði henni nægilegt loft, meðan hún blundaði. Hún gat alls ekki gert sér grein fyrir þvi, hversu lengi hún hafði sofið. En þaö hafði létt til, þegar hún vaknaði. Það var orðið heiðskirt, og stjörnurnar voru skærari en hún hafði nokkru sinni séð þær þegar hún var i landi. Svifið gæddi sjóinn fosfórkenndum lit, og fiskitorfur þutu fram hjá eins og ljós- bjarmar. Bæn um að mega lita sólarupprásina. Nú heyrði hún i flugvél I fyrsta skipti. Hún sá, að blysum var skotið upp i fjarska, en svo sifellt nær. Þegar ein af fallhlifunum með svifblysunum i seig niður i aðeins tæpra 100 metra fjarlægð, synti hún æðislega I áttina til hennar, veifaði handleggjunum og æpti. En flugvélin fjarlægðist án þess að hægja á sér. Enginn hafði komið auga á hana. Hún fann til logsárra vonbrigða. Nú átti hún samt orðið svolitla von, og þá fóru hugsanir hennar að snúast um lif hennar. Hún hafði sparað við sig mánuðum saman til þess að geta keypt Róbert dýrt úr i jólagjöf. Þetta átti að koma honum algerlega að óvörum. Hún hafði látið taka það frá. Fengi hann það nokkurn tima, ef hún týndi lifi? Þegar hún fór að hugsa um Róbert, varð henni jafnframt hugsað til giftingarhringsins sins. Og hún gerði sér grein fyrir þvi, að hann var smám saman að losna af fingri hennar, um leiö og krampakenndir kippir fóru um fingurna. Hún renndi honum af baug- fingrinum og tróð honum upp á þumal- fingur og kreppti siðan hnefann og gætti þess, að þumalfingurinn visaði inn i lófann. Hún átti erfitt með að hugsa ekki um allt það, sem hún mundi fara á mis við, börnin, sem þau höfðu þráð að eignast, fallega, gamla húsið, sem þau höfðu ráðgert að lagfæra. Hún bað þess eins að mega lifa það að sjá sólina koma upp. Siðustu klukkutimana rétt fyrir dögun byrjuðu örsmáir fiskar með hárbeittar tennur að narta i hana likt og mýflugnager. Saltur sjórinn erti blóðrisa afrifurnar á hælum hennar. Hún velti þvi fyrir sér, hvort blóðið mundi draga að sér hákarla eða hvort hún mundi einfaldlega drukkna vegna ofþreytu. Loks kom sólin upp og hellti geislum sinum yfir lygnan sæinn. En það sást hvergi til mannaferða. Og svo tók þorstinn að ásækja hana, þegar sólin hækkaði á lofti. Varir hennar brunnu af þorsta, og henni fannst sem tungan væri allt of stór til þess að komast fyrir I hálsinum. Saltið hafði klesst hár hennar saman, svo að það liktist helzt samanlimdri flækju. Hún var komin með slæmar afrifur á lærin, sem nugguðust saman i hvert skipti sem hún varð að sparka frá sér til þess að halda höfðinu upp úr sjónum, svo að hún gæti andað. Henni reiknaöist svo til, að hún hefði nú verið á sundi i a.m.k. 18 tima. „Þetta getur ekki haldiðendalaust áfram,” hugsaði hún. „Kannske væri betra að binda bara endi á það núna.” „Gáið að glömpum” Tuttugu milum austar söfnuðust leitarbátarnir saman i Homosassa. Allir voru ákveðnir að halda leitinni áfram, þótt flestir álitu, að nú væri orðin lit’il von til þess, að Glenda fyndist á lifi. Róbert var hluthafi i
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.