Úrval - 01.01.1973, Side 23

Úrval - 01.01.1973, Side 23
HVAÐ SEGJA FURURNAR OKKUR? 21 Abrahams og jafnvel enn lengra aftur f hinar óljósu forsögualdir? John Muir náttúrufræðingi varð svo aö orði, þegar hann virti fyrir sér þessar undnu en tignarlegu lifverur, þar sem þær ber við klettasnasir, hamra eða himin: „1 þeim má sjá augljósa stað- festingu á kærleika Guðs.” Þessi öldnu tré við eða fyrir ofan efstu trjágróðrarmörkin, eru furðuleg I lögun, undin og snúin.'næstum þvi ótrúleg oft og tiðum. Hvert þeirra hefursin sérstöku „persónueinkenni”. Mörg þeirra eiga sér nöfn, t.d. Methúsalem (elzta lifandi tréð, að þvi bezt er vitaö), Ættarhöfðinginn (stærsta burstaköngulfuran, sem vitað er um, 12 m i ummáDog Alphafuran (fyrsta lifandi tréð, sem fannst af þeim aldursflokki trjáa, sem náð hafa 4000 ára aldri). Til allrar hamingju er ekki hætta á, að furur þessar deyi út, þar eð þeim fjölgar sennilega ört. En samt er það að verða aðkallandi vandamál að veita athyglisverðum sérstökum trjám og þyrpingum trjáa nægilega vernd og einnig enn eldri dauðum trjám og trjáleifum. Bannað er aö höggva þau eða hluta af þeim. En landsvæðin, sem þau vaxa á, eru geysilega viðáttumikil, og erfitt er að hafa eftirlit með þvi, að lögum þessum sé hlýtt. Arið 1901 byrjaði A.E. Douglass að leita að trjám nálægt Tucson i Arizonafylki með það fyrir augum að fá hjá þeim upplýsingar um veðurfar fyrri alda og árþúsunda. Edmund Schulman aðstoðarmaður hans rann- sakaði sequoiarauðviðarfururnar og ársvaxtarhringi þeirra, en honum fannst þær ekki vera eins gott rannsóknarefni og tré, sem uxu á þurrviðrasvæðum, þvi aö þau höfðu að geyma nákvæmari upplýsingar um mismun úrkomu frá ári til árs. Með þvi að rannsaka barrtré, sem uxu við útjaðra eyðimarka, og bjálka og viðarbúta, sem fundust við uppgröft fornleifa, tókst honum að færa sönnur á, að geysilegir þurrkar höfðu komið á 20., 16., og 13. öld. Svo uppgötvaði hann hina hárnákvæmu ársvaxtarhringi burstaköngulfuranna. Árið 1961 var farið með fullkomin rannsóknartæki upp að vaxtarstað þeirra i há- fjöllunum, og siðan hafa visindamenn fylgzt með trjávextinum og mælt hann með hliðsjón af breytilegum lifs- skilyrðum umhverfisins, sem hafa einnig verið vandlega mæld og vegin. Eftir þvi sem ársvaxtarhringatima- talið hefur náð lengra aftur i forn- öldina, hefur skráin með upplýsingum um veðurfar á jörðunni áður fyrr orðið sifellt lengri og veigameiri, eftir þvi sem upplýsingarnar hafa hlaðizt upp. . Visindamennirnir uppgötvuðu brátt önnur fyrri trjágróöurmörk fyrir ofan núverandi trjágróðurmörk á Washingtonf jalli i austurhluta Nevadafylkis, og var þar að finna mikið af steingerðum trjám. Þetta draugalega svæði nær frá 3.700: m hæð og allt upp i 3.900 m. Þar er mikið af leifum burstaköngultrjáa, og eru sumar þessar leifar enn rótfastar við jarðveginn. Talning ársvaxtar- hringa þeirra og kolefnisaldurs- ákvörðun sýnir, að öll þessi tré dóu fyrir 2000-2700 árum. Svipaðar leifar hafa fundizt i öðrum fjallgörðum, sem eru mörg hundruð milum i burtu, og sannar það, að efstu trjágróðrar- mörkin hafa færzt niður á stórum svæðum og það ekki fyrir svo iöngu þ.e. á dögum þeirra Platos og Aristotelesar. Engin lifandi tré hafa getað fest rætur siðan þá i hinum köldu háfjöllum. Erum við þannig að nálgast aðra Isöld? Skemmdar vatnsleiðslufrumur i
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.