Úrval - 01.01.1973, Síða 34

Úrval - 01.01.1973, Síða 34
32 ÚRVAL myllur, sem snúast, og dýr, sem leika lag, þegar barnið togar i spotta. Einnig eru boltar mjög ákjósanlegir, ekki boltar, sem velta burt, heldur boltar með troði i, með breytilegri áferð eða með dældum f, þannig að barniö geti auöveldlega náð taki á b'oltanum. Þegar barnið hefur náð 10—11 mánaða aldri, er það komið á mikla hreyfingu og vill rannsaka flesta hluti. Það er lika orðiö ákveðið i að reyna að ráða sjálft yfir hlutum og stjórna þeim. Þegar barnið byrjar að ganga, likar þvi vel viö leikföng, sem það getur stjórnað og ráðskazt með, leikföng, sem hægt er að ýta og toga, einkum leikföng.sem gefa frá sér ein- hver hljóð og vel heyrist i, leikföng, sem hægt er að lemja, og leikföng, sem hægt er að stafla upp hverju ofan á annað. Einnig eru leikföng, sem veita umbun fyrir erfiði, mjög heppileg. Sem dæmi mætti nefna dýr, sem hoppar i loft upp, þegar barnið snýr skífu. Barnið elskar hið óvænta og nýstárlega. Einnig mætti nefna leik- föng, sem hægt er að sitja á og nota sem hest og einnig hægt að ýta og geta þannig hjálpað til við skrið eða gang og síðar er svo hægt að þeysa um á. Leikföng, sem nota má i baði, og mjúk dýr, sem hægt er að halda i fanginu, eru einnig mikilvæg. Smábörn <1 1/2 til 3 ára.) Smábörn vilja stöðugt hafa eitthvað fyrir stafni. Þau hlaupa, hoppa, stökkva og klifra bara vegna ánægjunnar af að gera slikt. Nú er kominn timi til þess að kaupa góðan klifurútbúnað, tæki, sem klifra má i innanhúss, eða rennibraut, einnig klifurtæki til notkunar utanhúss, en þau geta börnin notað árum saman. Og ofarlega á óskalista sér- fræðinganna eru sandkassar og ýmis tæki, sem má þeysa á. Nú er samhæfing smærri vöðva barnsins i örri þróun, og þvi gæti það verið góð hugmynd að gefa þvi mjög litil púsluspil, sem eru aðeins með 2-3 stykkjum, stórar kúlur til þess að þræða á band eöa að smella saman og stóra liti. Nú fer barnið að hafa gaman að því að byggja, og þegar það hefur náð 2-3 ára aldri, er það orðið nægilega þroskað til þess að leika sér að byggingakubbum. Mjög ákjósanlegir eru kubbar úr tré, sem falla hver við annan og eru i ýmsum stærðum og af ýmislegri lögun. A þessu stigi hefur barnið fengið mikla löngun til þess að likja eftir, og nú þykir þvi gaman að ýmsum leikföngum, sem eru smækkuð mynd raunverulegra hluta, t.d. litlum fólks- og vörubilum, brúðum, litlum hljóðfærum og simum. Forskólaaldur (3-6 ára). Það er um að ræða tvo sterka skapgerðarþætti barna á þessum aldri: löngunina til þess að láta sem ýmislegt óraunverulegt sé raunveru- legt og löngunina til þess að öðlast ýmsa hæfni. Gefið barninu einföld leikföng, sem það getur beitt Imyndunarafli sinu við, t.d. smáhús (til eru ágæt pappahús, sem kosta 6 dollara), húsbúnað, leikbrúður, búninga og lækningatæki, svo að barnið geti leikið ýmis hlutverk hvert af öðru. Sérstaklega er mælt með sveitabæjum og landbúnaðartækjum, bensinstöðvum og geimferðastöðvum, auðvitað með nauðsynlegu fólki og dýrum. Leir og litir veita einnig ágæta útrás fyrir sköpunarþörf barnsins. Sama er að segja um skólatöflur, helzt stórar og nægilega sterkar til þess að endast i
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.