Úrval - 01.01.1973, Page 44

Úrval - 01.01.1973, Page 44
42 ÚRVAL kompum sinum, þegar við þörfnumst þess. Minnið er „ógnvænleg” starfsemi, sem hefur lengi töfrað þá, sem eru for- vitnir um staðreyndir lifsins. Það er samt ekki fyrr en nú nýlega, að gerð hefur verið meiri háttar tilraun til þess að skilgreina starfsemi minnisins, mæla hana og öðlast skilning á vinnuaðferðum þess. Taugaliffæra- fræðingar, sálfræðingar, sameindalif- fræðingar, lifefnafræöingar og fleiri sérfræðingar eiga aðild að þvi rannsóknarstarfi. Flestum kemur saman um, að það sé um að ræða a.m.k. tvær tegundir minnis, annars vegar „skyndiminni”, sem er aðeins virkt i nokkrar sekúndur (maður gáir t.d. að simanúmeri i simaskránni og man það nógu lengi til þess að geta valið það) og langtima- minnisatriði eru liklega geymd i eitt skipti fyrir öll fyrir alla ævi manns. Skyndiminnið er mjög miklum takmörkunum háð. Maður getur munað sem snöggvast 1 sjö stafa simanúmer en ekki 3 eða 4. Og það er mjög liklegt, að sé númerið á tali, verði maður að gá að númerinu aftur. Meðan þú lest þetta, geymirðu orð i skyndiminninu. f lok setningarinnar tileinkarðu þér merkingu hennar en sleppir „taki” á orðunum sjálfum. En rekist maður nægilega oft á eitthvert skyndiminnisatriði, pósthverfis- númerið sitt eða nafnið á nýjum nágranna, flyzt þetta minnisatriði til varanlegrar geymslu i langtima- minninu. Athyglisverðar aðstæður eða, áreiðanleg „uppflettingaratriði” hjálpa til þess að koma slikum flutningi i kring. Skákstórmeistari litur sem snöggvast á taflborðið, þegar skák fer i bið. Og nokkrum dögum eða jafnvel vikum siðar man hann nákvæmlega stöðu taflmannanna, vegna þess að það er rökréttsamhengi ihenni og myndun hennar. En séu tafl- mennirnir látnir á ýmsa staði af handahófi, man stórmeistarinn ekki fremur stöðu þeirra en við hin. Langtimaminni er mesta furðufyrir- brigðið. Eftir að minnisatriði fer til geymslu i langtimaminninu, virðist það geymast þar alla okkar ævi. Það getur verið, að okkur reynist erfitt að ná til þess, þegar við þurfum á þvi að halda. En það er kyrrt á sinum stað þrátt fyrir það. Noti maður ekki móðurmál sitt i tiu ár samfleytt, getur virzt svo sem öll þekking á þvi sé horfin. Sem dæmi mætti taka vietnamskt tökubarn i Kansasfylki. En dvelji það siðan nokkrar vikur i Vietnam að þessum tiu árum liðnum, mun það byrja að tala móðurmál sitt reiprennandi á nýjan leik. Þekking þess á móðurmálinu var geymd i lang- timaminninu. Við gerum okkur ekki grein fyrir þvi geysilega magni upplýsinga, sem við höfum geymt i minni okkar. En við sérstakar aðstæður er hægt að ná til allra þessara upplýsinga. Dáleiðsla gerði múrara einum það fært að muna nákvæmlega óvenjulegt mynztur veggs eins, sem hann hafði hlaðið fyrir 40 árum. Miðaldra maður einn lýsti með geysilegri nákvæmni skóla- stofunni, sem hann var i, þegar hann byrjaði að ganga i barnaskóla. Dr. Wilder Penfield, hinn mikli kanadiski heilaskurðlæknir, hefur komizt að þvi með hjálp skurðaðgerða, hvar viss minnisatriði eru geymd i heilanum. Með lágstraumsraf- könnunartæki snerti hann ýmsa staði i heila sjúklinganna. „Rafstraumskitlið” gerði geymslu- svæði virk og endurlifgaði atburði, sem voru löngu „gleymdir” Ein
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.