Úrval - 01.01.1973, Side 56

Úrval - 01.01.1973, Side 56
54 ÚRVAL hverju dularfullu takmarki, einhverju leyndardómsfullu, sem engin skýring fæst á fyrr en við tortimingu okkar.” Og hin hrikalega frásögn i „Handrit I flösku” endar með þvi að skipiö tor- timist með ósköpum inn á milli stór- kostlegra isveggja. Edgar Allan Poe notar flöskupóstsfyrirmyndina að minnsta kosti einu sinni aftur á öðrum stað, en það er i skáldsögunni „The Balloon Hoax”. Hið mikla loftbelgs svikafyrirtæki, sem birtist i New York blaðinu „The Sun” á miðju ári 1840. Frásögnin var hreinræktuð „skippara historia” frá upphafi til enda en það stóð ekki i vegi fyrir þvi að fjöldi lesenda „The Sun” gleypti frásögnina, sem kom út i köflum, eins og heilagan sannleika! Börn Grants skipstjóra. Annað dæmi um flöskupósts fyrir- myndina i heimsbókmenntunum er „Les enfants du capitaine Grant”, — Börn Grants skipstjóra eftir Jules Verne, sem kom út á árunum 1873—1874 og hefur verið ástsælt les- efni hjá hverri ungdómskynslóðinni af annarri siðan. Bókin hefst á frásögn um að skipverjar á lystisnekkju Lord Glenarvans „Duncan” veiða stóran hákarl skammt norður af Islandi. Þegar hákarlinn er opnaður kemur i ljós að i maga hans er stærðar flaska og i henni er bréf, ritað á ensku, frönsku og þýzku, sem skýrir frá þvi, að „Britannia” skip Grants skipstjóra hafi farizt, en aö Grant og tveir af mönnum hans hafi bjargazt á þeim stað, þaðan sem flöskupósturinn er sendur, en það sé á 37. gráðu suður breiddar, en lengdargráðuna vantar. Lord Glenarvan og kona hans ákveða að gera tilraun til þess að bjarga Grant skipstjóra og leggja af stað á skipi sinu Duncan. Með i ferðinni er einnig franskur jarðfræöingur og sonur og dóttir Grants. Þau ferðast hnöttinn endilangan á móti öðru leitar- skipi og finna loks Grant og menn hans á eyjunni Maria Teresea, sem einmitt liggur nákvæmlega á 37. gr. S. breiddar. En úr þessu skapast ótal ævintýri. Flöskupóstur i þágu visinda. Um miðja 18. öld var stofnað til alþjóða siglingamálaráðstefnu undir forystu ameriska sjóliðsforingjans Matthew F. Maury. Árangurinn varð sá, að byrjað var að rannsaka vind og strauma um alla jarðkúluna og varö upphaf að nútima veður— og haffræði- starfsemi. Þau vinda— og straumkort, sem byrjað var að útbúa styttu siglingaleiðir seglskipanna yfir heims- höfin um allt að einum þriðja og gerðu ferðalögin öruggari. Flöskupóstur i 10.000 ölflöskum. Fyrir nokkrum árum gekkst ameriska fiskimálaráðuneytið fyrir viðtækum rannsóknum byggðum á flöskupósti, með 10 þúsund ölflöskum, sem fengnar voru hjá ölgerðarfyrir- tæki. Flöskurnar fundust aftur svo að segja um allan heim. t flöskunum var spurningaskema, sem átti að útfyllast, en margir þeirra, sem sendu svörin, óskuðu einnig bréflega eftir nánari upplýsingum um þessar tilraunir. Þó að það væri greinilega tekið fram, að fólk gæti ekki búizt við greiðslu fyrir endursendingu, voru margir, sem báðu um eitt og annað. Einn Indónesiumaður óskaði eftir að fá sent transistortæki, armbandsúr eða bil. Margir báðu um peninga — átakanleg bréf, sem lýstu sárri fátækt. Frá Bahamaeyjum kom þannig bréf: „Ég.er gömul kona 90 ára að aldri. Þess vegna bið ég yður að vera svo
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.