Úrval - 01.01.1973, Síða 104

Úrval - 01.01.1973, Síða 104
102 ÚRVAL páfaefnið. En Roncplli hafði þá fengið atkvæði þeirra, sem vildu ganga meðalveginn I breytingum og umbótum, og einnig nokkrrá þeirra, sem voru afturhaldssamari. Siðdegis þennan dag rikti eftirvænting I kapellunni, þegar ellefta kosningin hófst og kver kardinálinn á fætur öðrum mælti þessi orð: ,,Ég kaila Krist, Guð minn og dómara, mér til vitnis um, að ég kýs þann, sem ég álit, að ætti aö vera kosinn með Guðs vilja.” Þegar allir höfðu kosið, lásu þrir kardinálar upp nafnið á hverjum atkvæðisseöli, en hinir fylgdust með tölu atkvæðanna. Hvað eftir annað heyrðist kallaö eitt nafn: „Hinn há- æruverðugi Roncalli kardináli.” Þegar þessari elleftu kosningu var lokið, hafði yfirbiskupinn I Feneyjum fengið miklu fleiri atkvæði en þau 35, sem krafizt var sem lágmarks. Tisserant kardináli I Frakklandi, rektor hins Heilaga prestaskóla, gekk hægt til Roncalli, þar sem hann sat, fölur og þögull, og þá þegar aleinn mitt I hópi hinna kardinálanna. „Takið þér þeirri kosningu, sem hefur nú farið fram samkvæmt kirkjunnar reglum?” spurði hann. Roncalli svaraði: „Er ég hlusta a rödd þina, skelf ég og hræðist. Ég þekki ófullkomleika minn og Htilvægi, og er slíkt næg skýring á ringlun minni. En ég sé merki um Guös vilja I atkvæðum starfsbræðra minna, og þvi samþykki ég það val, sem þeir hafa ákveöiö.” Um leið og hann sagði orðin „samþykki ég”, var hann orðinn páfi. Aðstoðarmenn toguðu I snúrur, sem lækkuðu tjaldhimnana yfir stólum hinna kardinálanna til merkis um, að þeir væru ekki lengur jafnin'gjar hans. „Börnin mln,” sagði hann. „Elskiö hver annan, vegna þess að þaö er æðsta skipun Drottins.” Hvlta kollhúfan var sett á höfuð honum, og hann gekk aleinn að aðalaltarinu til þess að biðjast fyrir og siðan inn I skrúðhúsið til þess að klæöast páfaskrúöanum. Hinir opinberu klæðskerar Páfagarðs höfðu að vlsu saumað páfaskrúða I mis- munandi stæröum, en jafnvel sá stærsti þeirra var helzt til lltill fyrir 'Roncalli, sem vó rúm 200 pund. „Mér finnst eins og búið sé að reyra mig saman og ég sé og böggull tilbúinn til sendingar,” sagöi hann, þegar aðstoðarmaður hans lagaði hempuna á honum. Nú kvað við geysilegt klapp og mikil fagnaðaróp. Þetta var krafa um, að hann stigi fram á svalir Sankti Péturskirkjunnar. Hann steig út I birtuna og um leið fram I augsýn alls heimsins. ÓHkur öðrum páfum Norður I Sotto il Monte var Assunta, systir páfans, að kaupa brauð I brauðgerðarhúsinu, þegar bakara- konan heyrði fréttirnar I útvarpinu. „Guð minn góður”. stundi hún upp. „Hann Angelo litli.” Angelo Roncalli átti llka erfitt með að trúa þessu. „1 dag gerðu þeir mig að páfa”, skrifaði hann I dagbók sina. Og fram I huga hans spratt ákafur efi. Honum var það ómögulegt að gera sér grein fyrir slikri furðu, að hann, Angelo Giuseppe Roncalli, „hinn fátæki sonur Giovanni og Mariönnu, sem voru vissulega bæði velkristnar manneskjur, en svo lltillát og auðmjúk”, væri nú orðinn páfi. Næsta morgun hélt hann guðs- þjónustu fyrir kardinálana I Sistinsku kapellunni og hélt slöan hjartnæma ræöu I útvarpi Vatlkansins, þar sem
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.