Úrval - 01.01.1973, Síða 110

Úrval - 01.01.1973, Síða 110
108 ÚRVAL hélt Luigi Traglia kardináli guösþjónustu utanhúss fyrir allar þúsundirnar á Sankti Péturstorginu. Vorgolan var svo mild, að kertaljösin á altarinu blöktu rétt aðeins. Skömmu fyrir klukkan átta mælti Tragília kardináli svo hin hefðbundnu kveðjuorð. „Ite, missa est” (Farið, messunni er lokið). Og á því augna- bliki gerðist það, að maðurinn, sem fæddur var Angelo Roncalli en kom nú mjög til greina að verða tekinn I dýrlingatölu, dró andann hinzta sinni og dó. Mannfjölgunarráðstefna I Japan. Arið 2000 verða ibúar Asiu fleiri en íbúar alls heimsins voru arið 1970, ef fólki heldur áfram að f jölga þar jafnört og nú gerist. Kom þetta fram i skýrslu, sem til umræðu var á ráðstefnu um mann- fjölgunarvandamál Asiulanda, en ráðstefnan var haldin I Tokyo um miðjan nóvember. Þrjátiu og eitt land átti fulltrúa á ráðstefnunni, og i tuttugu og fimm þessara landa hefur þegar verið komið á fót miðstöðvum eða starfsemi á vegum hins opinbera, sem miðar að þvi að stemma stigu við mannfjölgun með gerð fjölskylduáætlana. Þegar siðast var haldin slik ráðstefna árið 1963 i Nýju Dehli var starfsemi af þessu tagi aðeins hafin i fimm af þeim löndum, sem þar áttu fulltrúa. Það kom fram á ráðstefnunni að næstum fimmtungur Ibúa þessara rúmlega 30 rikja býr i tólf löndum og þar er mannfjölgunin meiri en 3% á ári. A nitjándu öldinni fjölgaði ibúum þessara landa um 50%, en á tuttugustu öldinni er gert ráð fyrir að ibúatalan þar fjórfaldist, að minnsta kosti. Arið 1900 voru ibúar alls heims taldir vera 1650 milljónir, en verða um næstu aldamót 6515 milljónir. Mjög mikill munur er á mannfjölgun i hinum svokölluðu „þróuðu” og „vanþróuðu” heimshlutum. 1 hinum þróaða heimi er búizt við fólksfjölgun um 158% á þessari öld, en i vanþróuðu eða þróunarlöndunum verði fjölgunin 365%. Ef þessi spá stenzt munu 77 % ibúa heimsins búa i þróunarlöndunum árið 2000, en hliðstæð tala árið 1970 var 70%. Margir sérfræðingar, sem um þessi má fjalla, hugsa til þess með nokkrum áhyggjum hvernig eigi að útvega öllu þessu fólki atvinnu og húsaskjól. Löndin, sem hér um ræðir, hafa sett sér markmið, og ef það næst, mun draga alla verulega úr fólksfjölgun frá þvi, sem þessar spár gera ráð fyrir. Ef markinu verður náð verða fbúarnir 764 milljónum færri árið 2000 en spáin gerir ráð fyrir. Þá mundi með öðrum orðum ekki þurfa að byggja 180 milljón ný hús handa þessu fólki og gifurlegt fjármagn mundi sparast i fjárfestingu á öðrum sviðum, svo sem i menntamálum. Mestur er vandinn I Suðurhluta Asiu, Indlandi, Indókina og Indónesiu, þar sem búizt er við að mannfjöldinn vaxi úr 1947 milljónum nú 1 2128 milljónir árið 2000.1 Austur Asiu m.a. i Kina og Japan er búizt við að fjölgi úr 928 milljónum I 1407 milljónir. Árið 1974 munu Sameinuðu þjóðirnar gangast fyrir mannf jöldaráðstefnu og það ár verður helgað þvi vandamáli, sem hin öra fólksfjölgun I heiminum er að verða.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.