Úrval - 01.11.1974, Side 10

Úrval - 01.11.1974, Side 10
8 Hættulegur hraði heillar, en krefsl ímyndunarafls og mannslifa. SONNY KLEINFIELD Hraðamet á hjólum •x- •X T v / / \ i * *4 * ***** norð-vestur ríki Utah í Bandaríkjunum er víðáttumikil saltslétta, svo auð, svo gersneydd öllum gróðri, að hægt er að horfa í allar áttir og sjá ekkert annað en ávala jarð- arinnar. Hreggstormar vetrarins leggja vatnslag yfir sléttuna, svo mikið, að það tekur nokkra daga að gufa upp. Á sumrin-bakar sól- in sléttuna eitilharða. Þessi óraunverulega allsleysa er Bonneville saltslétturnar, þar sem geðþekkur ökumaður að nafni Garry Gabelich ætlar einhvern tíma á næsta ári að troða sér ofan í ekilssætið á afkáralegu ökutæki, sem líkist einna helst 10 metra löngum kúlupenna, rífa það af stað með miklum gauragangi og þeys- ast á því yfir saltsléttuna. Verði hann heppinn, nær hann rúmlega 1200 km hraða — sem nægir til að sprengja hljóðmúrinn. Verði hann óheppinn, mun bíllinn hans og hann splundrast yfir margra ferkílómetra svæði. 9 Til að gera þessa stund að veru- leika, mun Gabelich þá hafa eytt sem svarar 48 millj. króna, til að fullgera bílinn sinn, en mest af því fé er fengið úr höndum stórra og fjársterkra fyrirtækja. Hann hefur lagt dag við nótt til þess að gera tækið, sem hann vonast til að geti ekki aðeins farið fram úr hljóð' hraðanum, heldur einnig þeyst yfir saltsléttuna á nærri 1700 km hraða á klukkustund. Þó er Gabelich ekki að gera þetta til að ná sér niðri á keppinauti, hann á sjálfur heims- met í hraðakstri, sem hann setti, þegar hann þeyttist yfir saltslétt- una með 1001,6 km hraða á klst. í eldflaugaknúnum bíl 23. október 1970. Fyrsta hraðamet á landi var sett 18. desember 1898 og var þar að verki frakki, Gaston de Chasse- loup-Laubat. Franskt bílatímarit La France Automobile, fékk þá hugmynd að standa fyrir tveggja kílómetra kappakstri á sléttum vegi í Acheres, borg vestur af París. Chasseloup-Laubat geystist vega- lengdina í rafmagnsbílnum sínum með 63,14 km hraða á klukkustund. Chasseloup-Laubat hafði enga hug- mynd um hvaða brjálæði hann hafði hleypt af stað. Innan mánað- ar hafði belgískur uppfinningamað- ur, Camille Jeantzy að nafni, hrundið því meti með 66,65 km hraða á klst. Metið fór yfir 160 km hraða árið 1904, yfir 320 km hraða 1927, yfir 480 km hraða 1935, 640 km 1963 og þannig áfram þar til náð var yfir 1000 km hraða árið 1970. Alls hafa 34 menn átt heims- met í hraðaakstri einhvern tíma á þessu bili. Frægastur hraðakstursmanna er án efa Malcolm Campbul, englend- ingurinn hugdjarfi frá Chislehurst í Kent. Hann átti níu hraðamet — fleiri en nokkur annar, milli 1924 og 1935, og Georg konungur V sló hann til riddara fyrir árangurinn. Miklu seinna, milli 1960 og 1970,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.