Úrval - 01.11.1974, Blaðsíða 36
34
Þegar Campora dró sig í hlé eftir
sjö vikur sem forseti, svo Peron
gæti tekið við embættinu, jókst
sundrungin að mun og öfgahópar
til hægri og vinstri lýstu stríði á
hendur hvorir öðrum. Töldu báðir,
að þeim bæri að yfirtaka stjórn
flokksins að Peron liðnum. í kjöl-
far uppgjörs þessara hópa fylgdi
upplausn, morð og ofbeldi. Lög-
regla og dómarar eru einnig skiptir
í hægrisinna og vinstrisinna, og
þessir aðilar verða iðulega fyrir
hótunum, ef þeir hefja afgerandi
baráttu gegn ógnaröflunum.
Þrátt fyrir það að fram að andláti
Perons væri helmingur ríkislög-
reglunnar, sem í allt var tíu þús-
und manns, rannsóknar- og saka-
málalögregla, voru þeir svo lélegir,
að minna en helmingur mannrána
í Argentínu voru kærð. Fjölskyldur
og fyrirtæki álitu tryggast að semja
milliliðalaust við ræningjana.
ANNAÐ EN FE. Starfssamastur
hinna mörgu ofbeldishópa er Bylt-
ingarher alþýðunnar, marxískur
hópur, sem á spænsku er skamm-
stafað ERP. Félagar ERP eru ábyrg-
ir fyrir meir en helmingi þeirra 30
rána á erlendum verslunarmönn-
um, sem framin hafa verið síðast-
Liðið hálft annað ár. Félagarnir eru
mjög félagslega meðvitaðir og fara
iðulega fram á annað en peninga.
í skiptum fyrir Oberdan Sallustro,
aðalframkvæmdastjóra Fíat-verk-
smiðjanna í Argentínu, kröfðust
þeir 120 milljóna í „alþýðusjóð",
aðra 120 milljóna vildu þeir fá til
kennslu fátækra barna, og loks
frelsun fangelsaðra verkfallsmanna
hjá Fíat. Þeir kröfðust einnig, að
ÚRVAL
yfirlýsingar þeirra væru birtar
sem greiddar auglýsingar*.
Enda þótt ríkisstjórnin hafi
lýst samtökin ólögleg og blöðum sé
stranglega bannað að birta nafn
þeirra á prenti, hefur ERP enn í
dag harðan kjarna á að giska 500
félagsmanna, og mörg þúsund
stuðningsmenn. Að því er áreiðan-
legar heimildir herma, hafa um 200
atvinnuglæpamanna hreyfingarinn-
ar hlotið mikla kennslu á Kúbu í
skemmdarverkum og baráttu skæru
liða. Aðrir hafa fengið sína þjálfun
í Alsír. Njósnakerfi þeirra er fram-
úrskarandi. Þegar útibússtjóra fyr-
irtækis í bandarískri eigu var rænt
af hálfu ERP, héldu argentískir
stjórnendur fyrirtækisins fund til
að ræða kröfuna um lausnargjald.
Hálftíma eftir fundinn hringdu
ræningjarnir til fyrirtækisins og
endurtóku, orði til orðs, það sem
þar hafði farið fram.
ERP skiptist í fjölda smárra mjög
samvirkra hópa með mjög sjálf-
stæða stjórn, sem nefnast „hegn-
ingarhópar11. Félagar eins hóps
þekkja aldrei félaga annarra hópa.
Eina sambandið er með milligöngu
foringjanna í aðalstöðvunum. Hópur
*Áður en þessar umfangsmiklu
ráðstafanir voru framkvæmdar, var
Sallustro myrtur, þegar lögreglan
kom til hússins, sem hann var
geymdur í, en þá var verið að vinna
að allt öðru máli. Ung stúlka, sem
var handtekin eftir að hún játaði
að hafa skotið Sallustro, var ein
þeirra, sem látin var laus við al-
menna náðun eftir valdatöku Cam-
pora forseta.