Úrval - 01.11.1974, Side 53

Úrval - 01.11.1974, Side 53
HIN DULARFULLA HÖFUÐBORG MAYANNA 51 er sífelldur skuggi eins og í dóm- kirkju, aðeins hér og þar kemst geisli hitabeltissólarinnar gegnum lauftjaldið. Blóðsugur hanga með höíuðið niðui' í rústum hofanna og fljúga út á nóttunni í leit að dýra- blóði. í skóginum eru eiturslöngur, eiturköngullær og önnur villidýr. Það er ráðgáta, hvernig svo dýrleg menning gat þróast í jafn óvin- veittu og hrjúfu umhverfi. En Pal- enque er staður, þar sem hvert leyndarmálið umvefur annað. Þótt hún væri einangruð, var Palenque fyrsta borg Mayanna, sem var uppgötvuð á nýlendutímabil- inu. í lok 18. aldar ''annsakaði An- tonio del Rio, höfuðsmaður í her spánverja, dularfullar rústir í skógi í Chiapas, sem þá heyrði undir stjórn Guaternala. Þá var skýrslu hans lítill gaumur gefinn, en hún var þýdd á ensku 3822 og birt í London. Árið 1830 braust sérvitur „greifi“. Johann Friedrich Maximilian von Waldeck barón, gegnum skóginn til Palenque. Hann var þá á miðjum sjöunda tugnum, og hann var í þrjú ár í Palenque og teiknaði rúst- irnar, sem hann fann. Síðan kom John Hoyd Stephens, lögfræðingur og áhugamaður um fornleifafræði, fra New York í fylgd bretans Fre- derick Catherwood til Palenque 1840. „Ekkert í mannkynssögunni heíur haft jafnmikil áhrif á mig og að sjá þessa borg, sem einu sinni var mikil og unaðsleg. í eymd sinni, vonleysi og gleymsku,“ skrifaði Stephens á sínum tíma. Skýrsla Stephens var áreiðanleg og nákvæm lýsing á Palenque og varð metsölurit. Hún er enn í dag lesefni fyrir þá, sem hafa áhuga á hinum dularfullu Mayum. Það var ekki fyrr en skömmu fyrir aðra heimsstyrjöldina, að borgin var grafin upp og viðgerð, fyrst undir stjórn Miguel Angel Fernandez, mexíkansks fornleifa- fræðings og málara, og Frans Bloms, sem var mexíkani af dönsku bergi brotinn Síðar kom Alberto Ruz Shuillier, mexíkani af frönsku bergi. Ruz gerði einhverja mikil- vægustu uppgötvun fornleifa í Ameríku. Við starf í ,,rithofinu“ tók hann 1949 eftir steinplötu í gólfi, með tvöfaldri röð af götum og um- lukta steinflögum. Þeir lyftu plöt- unni og fundu stiga, sem lá undir grunn um 20 metra hás píramída. Stigagangurinn hafði mörgum öld- um áður lokast af mold og grjóti. Ruz hafði hugboð um, að neðan stigans væri eitthvað mikilvægt, og hann og menn hans fóru að ryðja. Þrátt fyrir mikinn hita, raka og mollu komust þeir að lokum niður, undir miðjan píramídann. Þar fundu þeir fcrnar gjafir og brut- ust að lokum gegnum þykkan vegg. Ruz gekk þá inn í herbergi og fann sex beinagrindur fyrir fram- an lokaðan inngang að öðru her- bergi. Spennan óx. Þessir sex höfðu líklega orðið fórnarlömb, verið fótnað sem fylgdarmönnum ein- hvers yfirmanns yfir í annan heim. Meira en þrem árum eftir að beir byrjuðu uppgröftinn, rufu Ruz og menn hans loks síðustu plötuna, og þá komu þeir í hvelfingarsal. Regnvatnið hafði í 1000 ár valdið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.