Goðasteinn - 01.09.1963, Page 23

Goðasteinn - 01.09.1963, Page 23
Þorsteinn Þorsteinsson frá Ásmundarstöðum: Æskuminningar Móðir mín, Ingigerður Runólfsdóttir, var fædd að Áshóli í Holtum hinn 27. maí 1858, dáin 1. jan. 1934. Hún var fyrsta barn hjónanna þar, Guðlaugar Jónsdóttur og Runólfs Runólfssonar. Ætt Runólfs afa míns er hægt að rekja langt aftur. Runólfur faðir hans yar sonur Nikulásar í Narfakoti í Njarðvíkum, Snorrasonar í Skildinganesi, Gissurarsonar á Eiði, Bergsteinssonar í Skildinga- nesi, Bjarnasonar í Hreiðri í Holtum, Guttormssonar, Björnssonar lögréttumanns á Keldum, Þorleifssonar lögmanns á Skarði, Páls- sonar. Ekki skal sú ætt lengra rakin, en vitað er, að hún nær til Þorsteins skrofa, sonar Gríms kamban. Bræður móður minnar voru fjórir. Fljótt kom í hlut hennar, sem elzta barns, að vinna léttu störfin og snúast í kringum karla og konur á heimilinu. Var hún snemma tápmikil og ólöt. Sagt var, að móðir hennar hefði oft haft orð á því við mann sinn, að sér fyndist óþarft að láta þeirra einu dóttur ganga í skítverkum, utanbæjar, þegar hann hefði 4 strákum á að skipa. Hann svaraði því til, að strákarnir væru svo lengi að koma sér af stað, að hann gæti ekki beðið eftir því, en Gerða væri þotin á augabragði °g búin að ljúka verkinu, fyrr en varði. Runólfur var mikill hug- niaður og átti því bágt með að bíða. Hann var mikill fjör- og gleðimaður, ekki frásneyddur víni en fór vel með það. Einna helzt var það haft um hönd í ferðalögum. Gamli maðurinn átti úrvals hesta. Honum var ljúft að láta þá sýna kostina og koma samferðamönnunum í gott skap. Gat hann, ef því var að skipta, hlegið með öðru auganu en grátið með hinu. Goðasteinn 11

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.