Goðasteinn - 01.09.1963, Page 86
þeim ekki aðeins kennara heldur líka félaga og vini. Sömu sögu
höfum við öll að segja, sem hér höfum setið að námi.
Nemendum þessa námskeiðs þakka ég vinsemd, samstarf og
aðstoð. Sóknarprestinum, sr. Guðmundi Óla Guðmundssyni og
frú hans þökkum við frábæra gestrisni. Ekki skal heldur látið hjá
líða að þakka okkar ágætu ráðskonu, frú Steinunni Jóhannsdóttur,
og Guðjóni Arngrímssyni og frú hans fyrir allt, sem þau hafa
fyrir okkur gert.
Brátt höldum við svo héðan, sitt í hverja áttina. Auðna ræður,
hvort við eigum eftir að hittast síðar nema í góðri minningu, er
rifjaðar verða upp nokkrir samveru- og sólardagar á Skálholtsstað.
Lifið heil.
Ath. Námskeið fyrir kirkjuorganleikara og söngstjóra var haldið
í Skálholti þann 29/8 - 5/9 þ. á. Kennarar voru dr. Róbert A.
Ottósson, Guðmundur Gilsson organleikari og skólastjóri og Birgir
Halldórsson söngvari.
Kaupíélag Rangæinga
Hvolsvelli
Samvinnuverzlun tryggir sannvirði
Bjóðum yður ávallt fjölbreytt vöruúrval
á hagstæðasta verði.
ÚTIBÚ:
Rauðalœk,
Seljalandi.
Kaupfélag Rangæinga
«4
Goðasteinn