Skírnir - 01.01.1882, Blaðsíða 62
64
SVISSLAND.
hinn frekasti i öllum ummælum. Hann sveifst ekki heldur að
birta þær ræður sínar í blaðinu, þar sem hann hafði eggjað
til launmorða „til að koma framförum mannkynsins áleiðis“.
Sunnudaginn 5. september varð þorp (Unterthal í Genefu-
fylki) undir skriðu úr felli, sem heitir Ischingelfell, og fórust
þar 150 manna eða fleiri. Orsökin var sú, að menn hafa í
mörg ár brotið steinflögur eða þakskífur undan fellinu og holað
það iangt inn að neðanverðu, en um það leyti gengu mestu
rigningar og komu losi á það, sem illa tolldi uppi áður, og
fólki þótti hætta standa af, þó ekkert yrði gert til varnaðar.
Námafólkið sá eitthvert mót á losinu dagana á undan, og því
hafði það sig á burt, en ætlaði þó, að hrunið mundi ekki
verða svo mikið, eða granda þorpinu. þorpsbúar voru að
koma heim frá kirkju þegar íjallskriðan brast á þá, og urðu
þeir fáir, sem gátu bjárgað sjer. Mestur hluti dalsins, sem
þorpið stóð i, varð þakin moldu og skriðugrjóti, og fórst þar
mart fjenaðar, en jarðvegurinn spilltist gjörsamlega og allur
gróði. í rigningunum urðu viðar skriðuhlaup á Svisslandi, og
gerðu mikil spell á ökrum og engjum.
Nú er brautin i gegnum St. Gottharðsfjallið svo búin, að
rjett í árslókin var i fyrsta sinn ekið á henni tíl prófs. Til
þjóðbrautar á að vigja hana í byrjun júnímánaðar komanda.
Mannvirki þetta er eitt hið stórkostlegasta sem unnið hefir
verið og sýnir hverju kunnátta manna orkar á vorum timum.
það hefir kostað 187 millíónir franka.
Þyzkaland.
Efniságrip: Hvað ætla má um ráð Bismarcks. — Bismarck og hans
mótstöðumenn. — Nýar kosningar; þingflokkaafli. — Um frjálslyndi pjóð-
verja o. fl. — Hamborg komin í tollsambandið þýzlca. — Frá Elsas og
Lothringen. — Mannalát.
þó sumt hafi við borið síðan vjer skrifuðum inngang árs-
frjettanna, sem gæti vakið aðrar hugleiðingar, enn þar koma