Skírnir - 01.01.1882, Blaðsíða 123
NOREGUR.
125
bissum, og höfðu nokkrir menn af því sár og ökuml, en einn
maður fjekk bana. Við það tók þó óróinn að sefast, og innan
skamms tíma tóku menn upp aptur vinnu sína — og þá, sem
tíðast verður, við svo búið.
I sumar var sögðu blöðin frá, að nýjar málmæðar hefðu
fundizt á eyju við Kristjánssand, sem Hitteren heitir. I þeim
málmblendingi á að finnast n/i oo—2B/ioo af silfri og af blýi
23/ioo—7O/l0O.
Talið er, að frá Noregi og Sviþjóð hafi 50,000 manna
leitað þetta ár til Bandaríkjanna i Norðurameríku, en það fólk
að eins í þeirri tölu, sem gekk af skipsfjöl i Newyork. Frá
Noregi var hjerumbil þriðjungur þeirra vesturferla. Skáldið
Kristofer Janson, sem kom til Islands þjóðhátíðarárið, hefir
tekið prestvigslu og ráðizt vestur til landa sinna að gegna hjá
þeim prestsembætti.
Svíþjóð.
Efniságrip: Af þingmálaflokkum og fl. — Af herlaganefnd. — Sýn-
ingarfundir. — Brúðför krónprinsins. — Járnbrauta afmæli. — Gjöf til
handa bókasafninu í Stokkhólmi. — Ný ljóðmæli eptir A. U. Baath. —
Fornmenjafundur. — Mannsiát.
þegar menn líta á heiti þingfiokkanna hjá Svíum, þá eru
það sjerílagi tvö, sem greina mest, álíka og nöfnin „þjóðernis-
og frelsismenn“ og í annan stað „bændavinir“ rjeðu tvídeild á
þingi Dana í fyrri daga. það eru nöfnin: „landtmannapartiet“
og „intelligenspartiet“ (vitsmunaflokkurinn). Hið fyrra nafn
bendir á, að í þeim flokki hafi þeir dregizt til bandalags, sem
vilja annast um hagsmuni og rjettindi bænda og sveitafólks, og
þykjast því fremur standa í stað þjóðarinnar, sem þetta fólk
er margfalt fleira enn borgafólkið. þeir geta sagt, sem vjer
heima: „bú er landstólpi“, og það er bændafólkið, sem ber
„hita og þunga dagsins“ öðrum fremur. þvi er líka svo háttað