Skírnir - 01.01.1882, Blaðsíða 54
56
ÍTALÍA.
ábyrgðarhluta. — Vjer hnýtum hjer við að niðurlagi litlu dæmi
um, hvernig mörgum verður við á Italiu, þegar talað er um að
endurreisa veraldarvald páfans. I árslokin komu pílagrímar
frá Frakklandi til Rómaborgar til að vera við staddir, er páf-
inn kom íjórum mönnum í dýrðlingatölu. Á heimleiðinni komu
þeir til Pisu, og gengu þar til kirkju. Hjer flutti einn þeirra
ræðu á frönsku, en inn i kirkjuna komu nokkrir stúdentar, og
þegar þeir heyrðu á hvaða máli talað var, þá hljópu þeir út
á stræti, og sögðu að franskur klerkur væri að prjedika um
endurreisn páfaveldisins og sundrungu ens ítalska ríkis. Fjöldi
manna drógust hjer skjótt saman í þyrpingu, og biðu þess er
gestirnir komu út úr kirkjunni. Stúdentarnir gerðu þegar at-
súg að þeim, svo að þeir skunduðu sem þeir máttu út á járn-
brautarstöðina, og flýttu sjer upp i vagnana. Löggæzluliðið
komst hjer í krappan dans, er það hamlaði mannsægnum að
veita pílagrímunum árásir eða mein, en á stöðinni var grjóti
kastað á vagnana, og nærri lá, að mannmúgurinn næði að
skeyta skapi sínu á enum frönku mönnum.
Spán n.
Efniságrip: Af stjórn og þingi. — Fjárhagur og verzlun. — Gryð-
ingum heitin landsvist. — Fundur þeirra Alfons konungs og Lúis Portú-
galskonungs. — ísabella drottning heimsækir son sinn. — Járnbraut um
Pýreneafjöll.
Sagasta veitir enn forstöðu ráðaneyti konungs, og við
kosningar í sumar (21. ágúst) hlaut hans flokkur sigur í 275
kjördæmum, svo að þeir eru heldur fáir á þinginu, sem skipa
mótstöðuflokkana. Síðan Sagasta settist við stjórnarstýrið, hefir
allt gengið stillt og skrykkjalaust á Spáni, og það má fullyrða,
að konungsvaldið hefir orðið síðan vinsælla, enn það hefir verið
þar i langan tima. J>að er sem bezt þokkað af alþýðu, að
enn ungi konungur sneri sjer að þeim flokki, sem dregur
taum frelsis og framfara, þó gætilega verði að að fara. í októ-
ber áttu lýðfrelsismenn fund með sjer í Madríd, og var þar