Skírnir - 01.01.1882, Blaðsíða 100
102
TYRKJAVELDI.
og kallað sem skjótast á ráðherra sina, og á þeirri ráðstefnu
var dóminum svo breytt sem fyr segir.
Sú var lengi tilhugsan Dísraelís (Beaconsfields lávarðar),
sem hann hafði miklar mætur á, að Palestina skyldi verða
aptur byggðarland Gyðinga. Hann ætlaðist til, að því yrði
framgengt fyrir fje og framtakssemi Englendinga, en nú er sagt,
að auðmenn af Gyðingakyni í Miklagarði, og viðar þar eystra,
hafi beizt af soldáni landa á Serklandi og í Palestínu til byggða
þeim Gyðingum til handa, sem þangað vilja ráðast til bólfestu
frá Rússlandi og öðrum löndum. Einn Gyðingur hefir boðið
framlag 5 millíóna p. sterl. til að koma þeim nýlendum í
blómgun og til þess þrifnaðar, sem landkostirnir bjóða, en
allir vita, hvernig öllum landsnytjum hefir hrakað niður'hjer sem
víðar undir óblessunarstjórn Tyrkja. Sagt er að þessu máli
sje góður gaumur gefinn í Miklagarði, enda muni soldáni
kostur á drjúgri þóknan í peningum, sem hann jafnan þarfnast.
í október og nóvember geysaði Kólera í Mekka, borginni
helgu, en þar var þá mesta mannkvæmd af pílagrímum.
Frá hafnarborginni Jeddah og til Mekka eru tvær dagleiðir,
en þann veg ganga pílagrímar — þeir sem sjóveg eru komnir
til Arabíu ■— næstum alsnaktir, og hafa ekki annað enn ein-
hverja dulu um lendar og mitti, og má þá nærri geta, að
þeim verði hættára við sóttnæminu, ef pest er fyrir og mis-
jafnt viðrar. Annars þykjast þeir menn deyja í dyrum Para-
disar, sem þar látast, og því láta enir sjúku sem fyrst bera sig
í nánd við musteri Múhameðs (Kaába). Meðal pílagrímanna
var fursti frá Indlandi, og er þess getið, að hann ljet bera sig
innarlega inn i musterið, er hann var að dauða kominn, og
fyrir það gaf hann musterinu i testamentisgjöf 90 þúsundir
franka.
Frá Bolgaralandi. 25. maí tók Alexander jarl það nán-
ara til, sem hann beiddist af fólkinu. það skyldi kjósa nýtt
þjóðarþing, og þingið skyldi veita honum heimild til að stýra
landinu þinglaust í 7 ár, en innan þeirra útgöngu skyldi hann
mega kveðja þjóðarþingið til fundar, og bera þar upp breyt-