Skírnir - 01.01.1882, Blaðsíða 95
NÝJU RÍKIN Á BALKANSSKAGA.
97
ingar og vista frá báðum löndunum, en bæði í Zettinje og Bel-
grað tókst mönnum að hreinsa sig svo vel af öllum leyndar-
mökum við uppreisnarmenn, að ráðherrar Austurríkiskeisara
(bæði i Vín ogPest) lofuðu höfðingja beggja ríkjanna og stjórn
þeirra, fyrir drengslcap og- heillyndi. Vjer gátum þess i fyrra,
að Serbar ljetu nokkuð undan við Austurríki í Dunármálinu,
og það er ekki óliklegt, að stjórn keisarans hafi viljað gera
Serba sjer enn vinveittari og leiðitamari, er hún á að hafa
látið skjóta því að ráðaneyti jarlsins og þinginu i Belgrað, að
Serbar skyldu gera land sitt að konungsríki, og var slíkt sagt
í undirbúningi, þegar árið leið á enda. það var áform Aust-
urrikis og annara stórvelda í fyrstu, að sjálfsforræðið skyldi
gera öll þessi ríki Rússum fráhverfari, eða þvi að verða þeirra
skjólstæðingar. Austurríki hefir nú reynt, að Rúmenar og
Serbar vilja vera sjer sjálfum næstir og verja hagsmuni sína,
við hvern sem er um að eiga, en þá er eptir að beita þá ekki
ofurefli eða neyða þá til að heita á hið volduga Slafaríki fyrir
norðan sjer til fulltingis, einmitt það riki, sem þeir áttu að
vera slagbrandar á móti fyrir Balkansskaga.
Tyrkjaveldi.
Efniságrip: Launungarráð soldáns. — Af fjárhag. — Dómur þeirra
manna, sem salcaðir voru um morð Abdúl Azíz. — Gyðingar vilja fá lönd
til bólfestu á Sýrlandi og i Palestínu. — Kólera í Mekka. — Frá
Bolgaralandi. — Frá Egiptalandi.
Seinustu löndin, sem stórveldin dæmdu af Tyrkjum —
eða afsöluna við Grikki — urðu þau að toga úr greipum
þeirra og hafa allmikið fyrir, en nú er öllu skilað. það má
segja, að nú sje farið „að saxast heldur á“ Tyrkjaveldi, en
hvar skal staðar nema? Að því til horfist, verður það Bosnía
og Herzegóvína, sem fer r.æst, ef eigi má þegar alfarið kalla.
það getur verið, að vinir soldáns í Berlín sjái svo fyrir, að
hann haldi því sem hann hefir (þegar Bosnía og Herzegóvina
Skírnii 1882. 7