Skírnir - 01.01.1882, Blaðsíða 11
INNGANGUR.
13
riði, sem öllum stjórnmálamönnum Englendinga kemur saman
um, og það er, að engir út í frá megi ná ráðum á Egipta-
landi, sem lcynnu að vilja og geta bannað Bretum leiðir um
leiðarsundið á Suezeiðinu til landeigna sinna i Asíu. En auk
þess að eignir Frakka aukast þar ár af ári, þá þykir þeim
ekki litið undir því komið, að bægja þeim (t. d. Tyrkjum) frá
meginráðum á Egiptalandi, sem kynnu að vilja bekkjast til við
þá á þeim stöðvum, sem þeir hafa náð á norðurströnd Afríku.
— Vjer höfum leitazt við að sýna, hvernig stórveldunum virð-
ist vera „tvískipt11, eða hvernig ymsir þóttu vera „sjer um mál“
um árslokin, en allt um það þóttu litlar líkur til, að slíkt mundi
draga til meira sundurþykkis. Vjer getum þess líka hjer að
niðurlagi, að Frakkar og Italir gerðu með sjer um nýjársleytið
nýjan verzlunarsamning, og það var sagt, að Gambetta mundi
láta sjer mjög annt um að þægja Itölum í öllu, sem hægt væri,
og tengja aptur saman bönd fornrar vináttu með hvorumtveggju.
Af alþjóðafundum.
Vjer getum að eins einstöku funda, en vjer verðum að
vera stuttorðir •—- að nokkru leyti þess vegna, að sögurnar af
þeim hafa verið svo ónóglegar í þeim blöðum, sem vjer höfum átt
kost á að lesa. Að svo miklu leyti, sem slíkir fundir varða
yms visindi eða rannsóknir og uppgötvanir, þá geta þeir einir
sagt greinilega frá þeim, eða umræðum og ræðuhöldum, sem
bera skyn á hverja grein fyrir sig. Helztu fundirnir voru haldnir í
ágúst og september, og af þeim nefnum vjer fyrstan sýningarfund-
inn i Paris, þar sem rafurmagnsfræðingar voru frá öllum
löndum saman komnir, og sýndar voru rafurmagnsvjelar af öllu
tagi, bæði til hraðdráttar og lýsingar. Hjer höfðu stórþjóð-
irnar lagt mest til (Norðuramerikumenn, F.nglendingar, Frakkar,
þjóðverjar og Rússar), og nokkuð hinar flestar. Hjer var, auk
svo margs, undravjel Edisons, hljómberinn (fónógraf) og söng
hann og talaði eptir listamönnum Parisarleikhúsanna. Mest mun þó
hafa þótt varið í lýsingarvjelarnar, rafurmagnslampa Edisons
og fleiri annara, því þær sýndu, að nú var það allt fullnaði nær,
sem finna þarf til að neyta rafurmagnsins til haglegrar lýs-