Skírnir - 01.01.1882, Blaðsíða 114
116 DANMÖRK.
mörk sumra manna, sem hafa verið í skörungatölu „þjóðernis-
og frelsismanna“.
í júlímánuði ferðuðust þau konungur vor og drottning
(hún 14 dögum fyr) til mágs sins hertogans af Kumberlandi
°g þyri dóttur sinnar i Gmunden (i Austurríki). þau voru þar
i þrjár vikur, en á heimleiðinni fóru þau til Pjetursborgar, og
komu þangað 21. ágúst. Eptir nokkra dvöl hjá keisaranum
og dóttur sinni komu þau heim aptur 14. september. Daginn
á eptir lögðu þau á ferð, krónprinsinn og kona hans, hann
fyrst til Carlsruhe til brúðkaups Gústafs Svíakrónprins, en hún
til Haag að vera við jarðarför afa síns. þangað kom og
krónprinsinn, og fóru þau þaðan til Gmunden ogVínar; komu
heim aptur 17. nóvember. Hirð konungs vors heimsóttu þessir
höfðingjar: hertoginn af Edinburgh (21. júní), á siglingu sinni
með flotadeild til Krónstaðar (Pjetursborgar), að heimsækja
mág sinn, Rússakeisara. 18. júli heimsótti Svíakonungur kon-
ung vorn á öðru sumarsetri hans, Bernstorf, og fylgdu honum
synir hans, Oskar og Karl. I desember komu þau til kynnis,
ungu hjónin, Gústaf krónsprins og kona hans Viktoría (frá
Baden).
Mannalát. Vjer getum þeirra helzt, sem eru lesendum
rits vors á Islandi að nokkru kunnir. 3. júli andaðist eptir
langvinnan lasleik landi vor Magnús Eiriksson, og hafði
þá fimm um sjötugt. Eptir hann liggja fjöldi rita, sem hjer
þarf eigi að telja. þau eru nálega öll á dönsku, sem kunnugt
er, og eru flest hans langa andvígi gegn sumum kenningum
kirkjunnar. Vjer ætlum, að rit Magnúsar sáluga bíði áreið-
anlegri dóma, enn til þessa hafa á þau verið lagðir, og að
þau, ef til vill, verði síðar meira metin. En við hitt hafa allir
kannazt, að þau beri vott um mikið greindarafl, kappiðni í
rannsóknum, guðsótta og fölskvalausa sannleiksást. Hvað
mannkostina snertir, bróðurþel og hreint hjarta, ástúð og vin-
festi, þá getum vjer til svo margra vitnað, sem hafa þekkt
hann eða kynnzt honum lengur eða skemur, og munu æ minn-
ing hans blessa. Nokkrir af vinum Magnúsar sáluga hafa
gengizt fyrir um samskot til minnisvarða á leiði hans, og er