Skírnir - 01.01.1882, Blaðsíða 99
TYRKJAVELDI.
101
Abdúl Azíz var sviptur völdum og settur i varðhald, t. d. Mid-
hat pasja og mágar soldáns, Mahmúd Damad, Núri Damad,
og fl., og segja menn, að Abdúl Hamíd hafi því látið þá sök
á þeim bitna, að hann grunaði þá um leyndarmök við bróður
sinn Múrad, og þóttist vita, að þeir voru i mestu kærleikum
við sonu Abdúls Meschíds*). Tveir af trúðum (glímumönnum)
Abdúl Azíz gengu við morðinu, og nefndu til enn tvo menn
aðra, sem hefðu unnið með þeim að verkinu, en það hefði
verið framið eptir boði og ráðum þeirra manna, sem nú voru
nefndir, og fleiri annara. Allir voru þeir (9) til dauða dæmdir,
sem að sjálfu morðinu urðu sekir, en tveir aðrir til 10 ára
betrunarvinnu. Siðar gerði soldán þá vægð á dóminum, að
þeir sem til lifláts voru dæmdir skyldu færðir til Arabíu, og
sitja þar i varðhaldi æfilangt. það bar hjer til, að dómurinn
mæltist afar illa fyrir — jafnvel í blöðum Tyrkja, og allt þótti
mjög tortryggilegt um sakaprófin, og ekkert fullsannað. Eptir
á kvaddi soldán líka 20 lögspekinga (lögþýðendur Kóransins)
til álitagerðar um dóminn, og eiga þeir að hafa lýst hann
ólögmætan, fyrir þá sök sjerílagi, að hjer hefði eigi verið
dæmt eptir þeirri lögbók, sem „Scheri“ heitir; en þar segir
svo, að þann einn skuli dæma af lífi fyrir morð, sem það hefir
framið ,og að því er sannur orðinn með rökum. þeir eiga líka
að hafa kallað það rjett í alla staði, er völdin voru tekin af
Abdúl Azíz, því hann hefði svo óhæfulega á þeim haldið, sem
brjál hefði verið komið á ráð hans. Hann hefði sóað í ráð-
leysi íje ríkisins, hengt orðukrossa um háls þeim hönum sínum,
sem sigruðust i ati, og fleiri þesslconar hneyxli framið, en
þyngst hefði þó sú sök hans verið, er hann hefði verið kominn
á fremsta hlunn með að selja ríkið aldarfjöndum þess (Rúss-
um) í hendur. En fremur hefðu þeir sagt, að soldán mætti
vita hvað við tæki, ef það yrði síðar sannað, að hann hefði
skrifað undir líflátsdóm saklausra manna, því skyldmenni þeirra
og vandamenn gætu krafizt að lögum, að soldán skyldi sjálfur
lífið fyrir láta. Við þetta á soldán að hafa orðið skelkaður,
*) Elzta spn sinn vildi Abdúl Meschid leiða til arfs að rikinu á móti
ríkiserfðum Tyrkja.