Skírnir - 01.01.1882, Blaðsíða 81
RÚSSLAND.
83
taglskúfum“ og foringi fyrir 20,000 manna. Hann var 73 ára
að aldri þegar hann dó 14. september.
Rússland.
Efniságrip: Boðskráin 13. maí, og hvernig hún er undir komin; Igna-
tjeff, og fleiri af Gamal-Rússaflokki; keisarinn í Gatsjina; ferð hans til
Moskófu; rifrildi með þýzkum og rússneskum blaðamönnum; Gamal-Rússar
og þeirra hugleiðingar; samanburður við nihílista. — Af Ignatjeff og hans
ráðstöfunum. — Af níhílistum. -— Ofsóknir við Gyðinga. — Af Canstantín
keisarafrænda. — Fundur fornmenjafræðinga i Tiflis, m. fl.
Vjer skildum þar við Rússland í fyrra og „zar“ þess, er
hann hafði birt þá boðskrá (13. maí) til þegna sinna, að vel-
farnan lands og lýðs væri undir afli og þrótti zarvaldsins
komin. A prinsárum hans var optsinnis orð haft á, að hann
aðhylltist álit og kenningar „Gamal-Rússa“ og „Alslafa“-
flokksins, en þær lúta að því sjerilagi, að Rússland eigi að
vera út af fyrir sig, og þjóðin eigi að hlíta því sem hún á i
eðli sinu og sögu, og hætta sem fyrst að taka eptir háttum
Evrópumanna, því þeim fylgi spilling og guðleysi, og hitt hafi
orðið versti blettur á sögu ens miltla ríkis, að svo margir út-
lendir menn — einkum þjóðverjar — hefðu fengið þar ból-
festu, komizt i æztu embætti, landstjórnar og herstjórnar, og
hreykt sjer yfir ena innbornu með dreyssi og drambi. Hins
hefir opt verið áður getið, |hve þeim mönnum þykir það öfugt
horfa, er slafneskar þjóðir lúti valdi annara höfðingja, þar sem
„zarveldið11 ætti að eðlilegu fari að vera allra þeirra hlíf og
höfuð. Moskófa (sjá inngánginn 8. bls.) hefir verið og er enn
aðalstöð þessara manna, og í tveim blöðum eru kenningar
þeirra prjedikaðar, „Moskófutíðindum11 og „Rússanum“. Fyrra
blaðið á Katkoff, sem nefndur er í innganginum, og stundum
hefir verið minnzt á í enum fyrri árgöngum, en hinu heldur
út sá maður, sem Aksakoff heitir. Um báða er það jafnt að
segja, að þeir eru rammrússneskir, og hata það allt, sem ber
6*