Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1888, Síða 58
58
lengd og 24 fet á breidd; dyr á syðra hliðvegg, heldr nær vestra
enda. Við hinn nyrðra hliðvegg við vestrendaþessarrar búðar hefir
verið stór útbygging, og sjást dyrnar glögt fram undan þessarri búð
og hinni næstu á undan. Hefir verið ákaflega stórt hlað langsetis
með búðunum.
Fyrir ofan þessa búð sést endi af byggingu eða dálítilli búð
(23.), er snýr þvert upp í brekkuna ; syðri endinn er óglöggr, enn
sýnist hafa náð fast niðr að veggnum á hinni stóru búð; dyr sjást
á hinum vestra hliðvegg ; lengd búðarinnar verðr ekki vel mæld,
enn hún hefir verið mjög stutt. pessar tvær síðasttöldu búðir eru
fyrir vestan traðirnar.
Sex faðma niðr og suðr frá háu búðinni er hár bali, áfastr við
hinn vestra traðarvegg, og beint vestr undan langa mannvirkinu,
sem áðr er nefnt. Annaðhvort hefir hann verið áframhald af því.
og það er þá gegnum skorið af tröðunum, eða þetta er búð (24.)
sér.
Tveimr föðmum fyrir neðan þenna bala hefir staðið búð (25.)
með mjög útsléttuðum og breiðum veggjum, ekki allháum; hún er
47 fet á lengd, 24 fet á breidd; snýr frá landnorðri til útsuðrs;
dyr óglöggvar, sem sýnast hafa verið á hinum syðra hliðvegg
miðjum. Tveimr föðmum norðr undan þessarri búð hefir enn verið
búð (26.), er snúið hefir líkt og hin, enn er nú orðin að bala, eða
sléttum hól, aflöngum, og verðr því ekki mæld. Búðin hefir ver-
ið lítil.
Fjórum föðmum vestr frá þessum búðum, sem síðast eru tald-
ar, hefir verið búð (27.), sem er mjög niðrsokkin, j8 fet á lengd;
breidd verðr ekki vel mæld; dyr hafa verið á hinum vestra hlið-
vegg, annaðhvort miðjum eða nær suðrenda.
Svo sem tíu föðmum vestr frá þessarri búð virðist hafa staðið
búð (28.) á jafnsléttunni, sem nú er orðin svo niðrsokkin og óljós,
að ekki verðr með vissu séð, hveroig hún hefir snúið, og þvi siðr
verðr hún mæld.
Tveimr föðmum vestar er stór búð (29.), er snýr austr og vestr;
hún er 64 fet á lengd og 25 fet á breidd; dyr hafa verið á syðra
hliðvegg nær eystra enda, enn sá veggr er mjög niðrsokkinn, enn
bæði gaflhlöðin há og norðrveggrinn. Út úr honum nær eystra
enda hefir verið útbygging; dyrnar sjást ekki á hliðveggnum inn
í bygginguna, og munu hafa sigið saman; fram undan öllum syðra
hliðvegg er breiðr stallr eða hlað, enn suðr frá búðinni er flöt
jafnslétt.
Fimm föðmum vestar kemr enn búð (30.), eigi ákaflega löng,
snýr í austr og vestr; veggir ákaflega breiðir og útflattir; lengd
hennar er 80 fet, enn breidd 28 fet. Vestan til í miðju búðarinnar