Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1888, Side 99
99
et doctrina clanssimi Gudbrandi Jhorlacii. Islandiæ borealis episcopi
meritissmi. Anno Christi 1618, ælatis vero 77“ *. Myndin er tals-
vert farin að skemmast, orðin föl og með blettum. Umallamynd-
ina vottar fyrir sprungum, og er jafnvel farið að stýttast í lér-
eftinu.
Nr. 12. par undir hangir hin merkilega mynd af J»orláki
byskupi Skúlasyni (1628—1656), sem saumuð er af Halldóru Gud-
brandsdóttur, móðursystur hans. Má segja, að saumr þessi sé hið
mesta listaverk þess kyns. Undir myndinni stendr T. S.1 2 *, og þar
undir S. H. S.2, enn fyrir ofan myndina standa Th. S.2. Litirnir
eru skírir í myndinni, enda veit eg með vissu, að síra Benedikt
Vigfússon lét fága hana upp og setja undir gler og í gylta umgerð.
Sjálf er myndin 1 al. á hæð og iq þuml. á breidd.
Nr. 13. fá kemr syðst á kórgaflinum fjarskastór mynd af Grísia
biskupi Jjorlákssyni (1657—1684) og þrem konum hans, Gróu f or-
leifsdóttur (f 1660), Ingihjörgu Benediktsdóttur (f 1673) og
Ragnheiði Jónsdóttur (f 10/4 1715)- Sjálf er myndin 2 */2 al. á
hæð og 2 áln. á breidd. Aflar myndirnar eru með mjög breiðum
pipukrögum um hálsinn. Biskupinn, sem stendr i miðið, er í svartri
kápu með húfu á höfði, og heldr á bók. Til hœgri hliðar honum
stendr ein af konum hans. Hún er með hinn gamla uppvafða fald,
og hatt yfir, sem er með stórum börðum, sem vanalegt er. Utan
um hattinn eru 3 rósagjarðir hver upp af annarri og hin 4. um-
hverfis börðin að neðan. J>essar rósagjarðir líta út fyrir að vera
allar baldíraðar eða lagðar gullvír. Hún er í svartri hempu með
stórum spennum á brjóstinu og smáspennum eða pörum á báðum
börmum alt í skaut niðr. Allar þessar spennur eru sýndar gyltar.
Fram undan ermunum stendr pípulín, og framan á hempuermun-
um eru sýndar gyltar rósir alt í kring. Konan leggr saman hend-
rnar fyrir framan brjóstið. J>ar sem hempan slær sér út að neðan
—því að eigi er hún krœkt saman lengra niðr enn að mitti—, sést
í rautt pilsið eða samfelluna, sem alt er úr gulum rósum. — Við
vinstri hlið byskupsins er önnur kona, með sama höfuðbúnaði og
að öllu eins búin, að því er sést, enn eigi sést lengra niðr enn á
brjóstið. Við hennar hlið er þriðja konan. Hún er að öllu eins
búin. Einungis skilr það, að samfellan er ljósblá með gulum rós-
um. Yfir mynd Gísla biskups stendr: „Gislaus Thorlacius episcopus
meritissimus, pietate et eruditione clarissimus, in domino placide ob-
dormivit anno 1684, aetatis vero 53., ministerii 27“. Yfir konu-
1) 0: Mynd Guðbrands biskups þorlákssonar o. 8. frv.
2) Skammstafanirnar mun eiga að lesa svo: T(horlákur) S(kúlason)
S(uperintendent) H(óla) S(tiptis) og Th(orlákur) S(kúlason). E.Ó.B.
13*