Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1951, Blaðsíða 16
20
m og sneri rétt austur-vestur. I því fundust tveir hálfir sleggjuhausar,
hálfur steinhamar, kljásteinn, uppihald af lýsislampa og rafperla.
Gólf nr. 14 var undir nr. 6 á 80—90 sm dýpi allójafnt að ofan,
sneri frá norðri til suðurs og var 4,1 X4,3 m að stærð. Þar fundust
5 kljásteinar, lítill hálfur sleggjuhaus og brýni.
Gólf nr. 15. Undir nr. 11 var gólfskán, sem var nokkru nær því
að snúa austur-vestur en nýja húsið. Hún var á 80—90 sm dýpi, lægri
í vesturendann, að stærð 1,3 X 3,5 m. ,,Sjá mátti til veggjahnausa
að sunnanverðu og stoðarsteina nokkurra, t. d. í norður- og suður-
horni“. ,, . . . virtist vera baðstofugólf“. (M. Þ.). í þesari gólfskán
fannst tinnustykki, kljásteinn með dúkleifum við og járnþynna.
Gólf nr. 16 kom í ljós tæpa 4 m frá suðurhlið og 7 m frá austur-
hlið á 92 sm dýpi. Það sneri frá austri til vesturs og var að stærð
1,8X4,4 m. „Stoðarsteinar fundust í hornunum og í miðjum hlið-
um. Skánin mjög svört í miðju, full af beinum úr þorskhausum og
kindum og nautgripum.---------------Fyrir austurenda var bálkur úr
torfum (pallur); utan við svörtu skánina hafa rúmin verið. Þykktin
um 15—20 sm. Undir þessari skán var torflag, hefur verið tyrft yfir
eldra gólf, er byggt var“. (M. Þ.). 1 þessari gólfskán fundust tvö
græn glerbrot, glasbotn, leirbrot, krítarpípumunnstykki, kollustafur,
rennt skaft, sjálfskeiðungsskaft og útskorinn snældusnúður úr tré.
Gólf nr. 17. Undir nr. 15 kom í ljós gólf á 93 sm dýpi. Það var að
öllu útliti mjög líkt því gólfi, en nr. 17 sneri réttar austur og vestur.
Stærð gólfskánarinnar var 1,4X2,9 m. Um miðbikið var hún svört
og full af fiskbeinum, og virtist hér hafa verið baðstofa.
Gólf nr. 18. Á 94 sm dýpi, 15 m frá austurhlið, 2,7 m frá suður-
hlið, kom í ljós gólfskán, 1,5 m að breidd (frá austri til vesturs),
en lengd ókunn. M. Þ. segir, að þessi gólfskán sé eins og nr. 16, en
hún var ,,mjög svört í miðju, full af beinum“. 1 þessari gólfskán
fundust meðal annars ofnar pjötlur, brot af spegilgleri, beinskaft-
brot og renndur snældusnúður úr tré.
Gólf nr. 19. A uppdrætti M. Þ. er mörkuð gólfskán á 95 sm dýpi,
aðeins 10 sm vestan við nr. 18. Hún var 1,6 m breið, en lengd ókunn.
í henni fannst sívöl spýta og lítil steinkola.
Um þessar tvær gólfskánir segir M. Þ. í dagbók sinni 10. 7. 27:
„Vestast virtust hafa verið tvö gólf, baðstofu austar og eldhúss vestar,
frá suðri til norðurs; yfirborð á -=-94—95 sm hæð, en undir þeim
virtist hafa verið gólf frá vestri til austurs“ (þ. e. nr. 23). Hér gerir
M. Þ. ráð fyrir, að þetta hafi verið tvö hús, en samkvæmt uppdrætt-
inum eru aðeins 10 sm á milli gólfanna og því ekki rúm fyrir vegg