Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1951, Blaðsíða 48
52
Rúðugler. 3 brot úr þunnu grænu gluggagleri fundust ofarlega,
hið neðsta virðist vera úr gólfi 28 á -4-135.
Leirhella rauð skal hér að lokum talin, þó að hún hafi algera sér-
stöðu meðal þessara gripa. Hún er í þremur brotum, sem tvö falla
saman, og vantar nokkuð í helluna. Hún er úr grófum en harð-
brenndum rauðum leir og hefur verið a. m. k. 10X15 sm að stærð,
1,5 sm að þykkt og gat í gegnum hana á einum stað. Fannst í rauða-
blástursþró eða ofni í smiðjugólfi 32, á -i-140 og virðist því ekki
vera mjög gömul (varla fyrir 1500). Ekki er auðséð, hvaða hlutur
þetta hefur verið (bökunarhella?) né hvort hann er útlendur eða
kynni ef til vill að vera brenndur hér á landi (403).
Fatnaðarleif ar.
I uppgreftinum fann M. Þ. mikið af fataleifum, mest smáar pjötlur
úr ofnum ullarflíkum. Flestar voru þessar pjötlur í hinum efri lögum;
af þeim sem í gólfum fundust voru þær neðstu í gólfi 39 á -4-190,
en margar voru auk þess í sorpgryfjunum, en neðstar af öllum vefn-
aðarleifum voru tvær vaðmálspjötlur á -4-210—20, nærri sorpgryfju
1. Allar þessar leifar voru sendar til dr. Margrethe Hald í Kaup-
mannahöfn, og hefur hún leyft að hafa þetta eftir sér:
„Vefnaðarleifar þessar eru því miður ekki mjög fróðlegar. Flestar
eru þær með vaðmálsvend, en einstaka eru einskefta. Yfirleitt má
um þær segja, að á þeim sé frumstæður svipur, og sumar pjötlurnar
minna á efnið í klæðunum frá Grænlendingabyggðunum. Sumar vað-
málsleifarnar hafa smáa, snúðharða uppistöðu (z-snúna), en ein-
kennilega gróft snúðlint ívaf (s-snúið)“.
Rétt er að benda á, að allt mun þetta ofið í gamla kljásteinastóln-
um eins og grænlenzku flíkurnar og hefur því sitt heimildargildi, ekki
sízt þar sem mjög lítið er til af fyrri alda vefnaði hér á landi. í gólfi
nr. 28 fannst auk þess dálítil viðja af lopa, sennilega einu leifarnar,
sem til eru þess háttar.
Meðal fatnaðarleifanna eru rytjur af prjónlesi, m. a. belgvettlingur
og sokkaleistur, og fundust þær neðst í sorpgryfjunum nr. 1 og 2.
Leður.
Hér og hvar í uppgreftinum fundust skinnpjötlur, sumar sútaðar,
aðrar ósútaðar, flestar svo litlar, að ekki verða skilgreindar. Sumar
eru þó skýrar og auðþekkjanlegar. Sóli með hvassri tá, úr tvöföldu
leðri, hælinn vantar, en 8,5 sm breiður mest yfir ilina. Fannst norð-