Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1951, Blaðsíða 25
29
gryfjunnar 1 m neðar (-f-260). Mosinn á þessu torfi var grænn og
eins og lifandi mosi væri. Frá sorpgryfjunni lá mjókkandi og grynnk-
andi rás norður að suðvesturhorni á gólfskán nr. 28. Þessi svelgur
var nyrzt aðeins 20 sm breiður og 5 sm djúpur um miðju, en hvarf
þar í sorta og seyru. Frá því á móts við mitt gólf nr. 28 virtist liggja
ræsi í sveig suður og vestur í þessa sorpgryfju. Það var óljóst og fullt
12. mynd. — Frá uppgrefti 1927. Neðst til hægri rauðablástursgryfja
(gólf 31), þar fyrir ofan hlóðir (gólf 35). A miðri mynd sorpgryfja og
ræsi (Sp. 2 og R 2). Vinstra megin, fyrir ofan manninn, seyðir. —
From the excavation in 1927. Right front a pit for smelting iron ore, in
the baclcground a fireplace. In the middle a refuse-gutter. Left, behind man,
a cooking-pit.
af mold og rusli. Innihald gryfjunnar var svart sem blek og fúlt.
Þessir hlutir fundust: Gjallmolar, 3 kljásteinar, 3 járnsteinar, hníf-
blað, 2 spýtur, 2 stafir, tunnustafur úr eik, trétindur, 3 snælduhalar,
trépikkur, trétappi, kambur úr hvalskíði, fuglabein, fiskbein, kubbur
af neti, hvalbeinstittur, 4 þráðarleggir, 5 skinnpjötlur, skinnpjötlur
úr skóm, vefnaðarleifar margskonar, ullarband, hrosshár með bandi
um, ullarfléttingur, pjatla með mörgum hnappagötum, pjatla með