Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1951, Blaðsíða 52
56
Glöggt er, að í þessu húsi hefur átt sér stað endurbygging á sama
grunni, því að neðst nær gólfskánin undir allan millivegginn. Húsinu
hefur þá verið skipt við endurbygginguna, en áður verið eitt.
í þessu húsi fundust eftirtaldir gripir:
SnælcLusnúöur úr grágrænu móbergi, 4,7 sm í þvm, 1,9 sm á þykkt, venju-
legt lag.
Snældusnúður úr grænu móbergi, 3,4 sm í þvm, 1,5 sm á þykkt, venjulegt
lag; aðeins helmingur varðveittur.
Brýnisbútar, 9 talsins.
Hnífur úr járni, 8,8 sm að 1., venjulegur.
Hnífbrot, 6,7 sm að 1.
Járnbrot 3, óskilgreinanleg.
Kljásteinar.
Annað gólf. Þegar grafið var niður úr efsta gólfi og um 1,50 m
frá grasrót (-h-250) varð aftur vart við þunna og fremur óskýra
gólfskán með ekki vel greinilegum brúnum, en þó takmarkaðist hún
svo vel, að stærð hennar varð ákveðin því sem næst 3X3 m. Nokkrir
smásteinar voru sýnilegir í jöðrum, einkum að sunnan. Engin sáust
merki um dyr á húsi því, er þetta gólf var úr, og verður þeim ekki
ákveðinn staður. A gólfinu voru 2 grunnar grófir, og voru í annarri
nokkur einkennileg og mjög létt vikurstykki. Auk þeirra var undra
margt um forngripi, eða eins og hér segir:
Snældusnúður úr dökkgráu móbergi, 4,8 sm í þvm, 1,7 sm á þykkt, venju-
legt lag.
Snældusnúður úr mórauðu móbergi, 4,1 sm í þvm, 1,9 sm á þykkt, gatið
fláir mjög mikið að neðan.
Kambur (hárgreiða), ekki heill, en í upprunalegri lengd, 14,5 sm, með
mjög þéttum tönnum. Látúnsþynnur milli tannstykkja og oka, á bakinu 2
bogar með skarði á milli en stalli til enda.
Brýnisbrot 5, þar af eitt stórt, 15,6 sm að 1., ferstrent, mest 3,7 sm á hlið.
Hnífar 5, þar af 4 með tréleifum á tanganum, mjög venjulegir.
Járnnagli, stór.
Járnstylchi 9, óskilgreinanleg.
Steinn, mjög líkur grárri tinnu.
Vihurmolar 4, mjög léttir og enn einn, fægivikur.
Kljásteinar.
Sýnishorn af viðarleifum.