Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1951, Blaðsíða 18
22
frá norðvestri til suðausturs. í gólfskáninni var mikið af spýtnarusli,
höggspónum og viðarkolamolum og virðist hér hafa verið skemma.
I gólfskáninni fannst meðal annars hálfur sleggjuhaus, fjórar pjötlur
af fornlegum vefnaði og lítil skjóða.
Gólf nr. 23. Á 115 sm dýpi, 3 m frá vesturhlið og 3 m frá suður-
hlið, var gólfskán, 2,1X5 m að stærð og sneri næstum frá austri til
vesturs. Gólfskánin var gráleit af ösku og brunnum beinum, og hefur
hér að líkindum verið eldhús.
Gólf nr. 24. Undir nr. 16 var gólf á 115 sm dýpi. Það hafði
sömu stefnu og nr. 23, enda voru göng á milli þeirra. Stærð gólfsins
var 1,9X4 m. Gólfskán þessi var mjög lík nr. 15, 16 og 17 og
hefur sjálfsagt verið baðstofa. ,,í (vestara) norðurhorni var engin
veruleg gólfskán, í hvorugu gólfinu [nr. 16 né 24. — G. G.]. Bendir
það til, að þar hafi staðið t. d. hornskápur og að líklegt megi telja,
að sama fjölskylda hafi búið í báðum þeim húsum, sem hér eru
fundin gólfin að. Stoðarsteinar við neðra gólfið voru á yfirborði um
-j- 115“ (M. Þ.). Ekki er ljóst, hvar þessir stoðarsteinar voru né hvoru
gólfinu þeir tilheyrðu. Þetta (neðra) gólf náði niður að -hl35, og
neðst var það að vísu dökkleitt enn, en beinalaust. Líkur eru fyrir
því, að þegar það lag tróðst, hafi hér staðið eldri baðstofa samtímis