Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Qupperneq 25
ISLENZKUR TRÉSKURÐUR í ERLENDUM SÖFNUM
29
Samkvæmt H nr. 50 í HS minnsta hf. Þar stendur: Stokkur, lítill,
með loki á hjörum, gegnskorinn, og með letri.
Hlýtur að vera nr. 46 í „Viðbót“ í HS stærsta hf.:--------Hver-
tveggja letrið er illt aflestrar, með nokkuð einkennilegri sjaldsénni
stafagerð, ------
Kistillinn er frá Jóni á Búrfelli (í Hálsasveit), en norðlenzkur að
uppruna.------Hann var mjög bilaður, og vantaði oka, þegar eg fekk
hann (1886), en við þetta gerði eg, einsog sjá má. Hin gegnskornu
göt, milli stafa og utanum þá, voru flest full af gömlum mel og hé-
góma. Þetta stakk eg mestallt í burtu, þó sést enn dálítill vottur
þess.------
7. MÞ:-------alt er þetta torlæsilegt og krefst ráðningin mikils
tíma. Efst á framhlið getur verið byrjunin: GVD VOR FAdER SEM
I HIME RI; þar næst mun vera neðst á sömu hlið: KE ERtt HAtt
IFER OSS I ANDA etc.----------
8. Afbildningar, pl. 15, nr. 73. Peasant Art, fig. 7.
1. 64.958. Kistill úr eik, festur saman með trétöppum, hjörur,
skrá og skráarlauf úr kopar. Okar eru festir undir enda loksins við
gaflana. L. (loksins) 33.8, br. 25, h. 13.
2. Okarnir gapa nokkuð frá lokinu, að öðru leyti óskemmdur.
Ómálaður. 59.A.g.
3. Útskurður á hliðum, göflum og loki. Tvær höfðaleturslínur eru
á hliðunum og göflunum. Á lokinu er dálítið grautarlegt stöngul-
skrautverk. Stönglarnir ganga út frá lóðréttum miðstofni, um 4.5 sm
breiðum, með innri útlínum og innskorin blöð meðfram þeim að innan-
verðu. Efst er stofninn skreyttur með ferhyrndum, rúðustrikuðum
reit. Breidd stönglanna er mjög breytileg, mest milli 1 og 2 sm. Þeir
eru flatir að ofan með innri útlínum, mynda króka, fléttast saman,
enda flestir með tveimur blöðum, sem minna á fisksporða. Hið upp-
hleypta er um 2 mm hátt. — Skrautverkið ekki sérlega hrífandi. Bók-
stafirnir eru miklu fínna verk.
4. Ártal ekkert. (MÞ: Sennilega frá fyrri hluta 18. aldar.)
5. Áletrun:
giefe vyst aa gud af h em fyr \ þenna a ] þöllenn | gud
þier | giæfu h ædum nu s nn kistil þidust run ionsdottir
(Ráðin með aðstoð frá HS stærsta hf.)
6. L: Keyptur hjá H. Sigurðssyni 1888, Akranes.