Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Page 130

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Page 130
134 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS virðist vera þúfulöguð dys, enda fannst þar hauskúpa endur fyrir löngu, og fyrir fáum árum fundust þar fleiri mannsbein". Þessi staður virðist vera töluvert langt frá Einstakahól, þó að í landar- eign Elivoga sé, og þyrfti þar að gera rannsókn. 3. Daöastaðir í Núpasveit, Presthólahreppi, Noröur-Þingeyjarsýslu. Vorið 1956 bárust Þjóðminjasafninu boð frá Þorsteini hrepp- stjóra Þorsteinssyni á Daðastöðum í Núpasveit um að fundizt hefði sérkennilegur forngripur í landareign hans og líklega mundi vera þar fleiri forngripa von. Ég fór austur hinn 11. ágúst, og voru þeir með mér dr. Jan Petersen, safnstjóri í Stafangri, og Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi. (Alþýðleg frásögn um fund þennan er í Lesbók Morgunblaðsins 1956, bls. 721—725). Það kom í ljós, að hlutur sá, er fyrst fannst, var efri skjöldur af kúptri nælu. Hann hafði fundið lítill drengur, sem var að ganga við kindur. Hafði hann í grandaleysi fleygt neðri skildi nælunnar, en fann hann aftur um haustið og sendi hann þá safninu. Ekki mundi drengurinn nákvæmlega, hvar hann hafði fundið næluna, en Þorsteinn hreppstjóri og börn hans fylgdu okkur á þær slóðir, sem reyndust vera allfjarri bæ eða um hálftíma gang. Gengum við fyrst suður yfir lágan lyngás, sem gengur vestur úr Núpnum og heitir Vörðuás, beygðum síðan lítið eitt til suðvesturs, unz við komum að heita mátti alveg niður á Björgin, sem rísa brött upp frá Núps- mýrinni utan við Öxarnúp. Frammi á Björgunum er gríðarstór uppblásinn melur, þar sem þó eru enn eftir nokkur jarðvegslög sums staðar, og grastoppar standa hér og hvar. Uppblástur er hér enn í fullum gangi. Þarna hafði drengurinn fundið næluna. Fyrst sáum við á eínum stað nokkrar veðraðar hrossbeinaleifar og jafnvel smá- brot úr mannabeinum, og var þar sýnilega um að ræða örfoka kuml- stæði. Var þar ekki rannsóknarefni, en líklegt er, að þetta séu leifar kumls þess, sem blés upp á þessum slóðum um síðustu aldamót. Fundust þá tveir hringar úr járni, og munu áreiðanlega hafa verið beizlishringar, en síðan hafa öðru hverju sézt þarna bein, m. a. tvær mannshauskúpur, sem nú eru báðar týndar, önnur fyrir löngu. Þetta er eftir sögn Þorsteins hreppstjóra. Um 35 m SV frá þessum blásnu leifum fundum við kuml, sem var að blása upp. Bryddi þar á kúptri nælu, sem lá á hvolfi, og nokkrar perlur lágu ofan á rétt hjá henni, og voru sumar þeirra greinilega
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.