Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Blaðsíða 142
146
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
minjavörður var formaður í undirbúningsnefnd þeirrar sýningar,
og lagði bæði hann og aðrir starfsmenn safnsins mikla vinnu í hana.
Skálholtssýningin var opnuð með hátíðlegri athöfn í safninu 2. júlí
og var opin almenningi til 15. júlí. í þessu sambandi má og nefna
sýningu á verkum Ásgríms Jónssonar í tilefni af áttræðisafmæli
hans. Hún var að vísu ekki í salarkynnum Þjóðminjasafnsins, held-
ur Listasafnsins, en þjóðminjavörður átti sæti í sýningarnefnd og
kom því allmikil vinna á starfsmenn safnsins vegna þessarar sýn-
ingar.
Nokkrar sýningar einstaklinga voru haldnar í bogasalnum, Kir-
sten Kjær hélt málverkasýningu, Ljósmyndarafélag Islands hélt
sýningu á amerískum ljósmyndum og Gerður Helgadóttir og André
Enard sýndu höggmyndir og málverk.
Safnauki. Færðar voru á árinu 50 færslur nýfenginna safngripa,
en margir einstakir gripir eru í sumum þeirra. Flestir voru gefnir
safninu. Keypt var skatthol frá 1773, úr eigu Jóns Teitssonar Hóla-
biskups, og signetshringur frá Hvammi í Kjós. Meðal helztu gjafa
eru 7 málverk eftir Sölva Helgason, gefandi Halldóra Bjarnadóttir,
lítill róöukross með Limoges-verki, gefandi Kristmundur Bjarnason,
Sjávarborg, úr Ólafs Davíðssonar, gefandi Hannes Davíðsson, Hofi,
málarakassi Arngríms Gíslasonar, gefandi Björg Arngrímsdóttir frá
Selá, snældusnúöur með rúnaletri, gefandi Haraldur Ólafsson banka-
ritari, silfurarmband eftir Björn Ólafsson gullsmið, gefandi Jón
Björnsson, fyrrum kaupmaður á Þórshöfn. Sérstöku máli gegnir svo
um forngripi, sem grafnir hafa verið úr jörðu á vegum safnsins, og
voru þeir venju fremur margir á árinu.
Vaxmyndasafniö. Engin breyting varð á vaxmyndasafninu, en að-
sókn heldur með minna móti, þó ekki til verulegra muna.
Örnefnasöfnun. Ari Gíslason örnefnasafnari vann eins og áður
fyrir styrk þann, sem til örnefnaskráningar er ætlaður í fjárlögum.
Hann skrifaði undirbúningsbréf í 8 hreppa í Suður-Þingeyjarsýslu
og ferðaðist síðan um sama svæði til skráningar, kom á rúmlega 200
bæi. Á Akureyri dvaldist hann í viku og safnaði örnefnafróðleik
gamalla Þingeyinga þar. Þá hreinskrifaði hann á árinu og gekk að
öllu frá örnefnaskrám í 4 hreppum í Barðastrandarsýslu og 3 í
Vestur-lsafjarðarsýslu, alls á 7. hundrað blaðsíður.
Magnús Finnbogason frá Reynisdal skráði örnefni í Skaftártungu-
hreppi. Söfn hans bætast við örnefnasöfn Þjóðminjasafnsins, þó að
Fornleifafélagið standi straum af kostnaði.