Eimreiðin - 01.01.1918, Blaðsíða 1
Eimreiðin]
Eimreiðin komin ,heim‘.
Sjálfstœðishugur þjóðar vorrar hefir komið fram með ýmsum
hœtti á síðari árum. Og einn vottur hans er áhugi sá, sem hefir
sýndur verið á því, að fly tja sem flest af því, sem þjóðin á, heim
iil Islands.
Æðsta stjórnin hefir verið flutt heim. Æðsta mentastofnunin er
og heim þomin. Sama er að segja um Hafnardeild Bóþmenta-
félagsins og svo er um margt fleira. Verslun landsins er og að
mestu þomin heim og yrði of langt að telja alt er hér að lýtur.
Vœntanlega verður það nú eigi með slíf(um stórtíðindum talið
þó að „Eimreiðin' flytjist heim. En það er svo með hvern hlut,
að hann stœl(kar og smœl(f(ar eftir því, hvaðan á hann er horft.
Og því verður að virða á betra veg fyrir Eimreiðinni þó að þessi
heimflutningurinn sé talsvert merkilegur, þegar á hann er horft úr
hennar eigin bœjardyrum.
Eimreiðin er fœdd og uppalin i fjarlœgu landi. En samt hefir
hún jafnan nœrst af íslensku lofti, og getur eigi af öðru þrifist.
Hefir það stundum hlotið að vera henni nokkur ráðgáta, hvi hún
þprfti ávali að sjá dagsins Ijós fprsta sþifti svo fjarri ákvörðunar
stað sínum. Og nú hefir heimsstprjöldin mikla tek'ið svo óvœgum
höndum á hverju lífssambandi landa milli, að Eimreiðin hefir
naumast náð andanum svona fjarri lífsloftinu íslenska.
Rœður hún það því af að flptja sig nú að fullu og óllu heim.
Hún er nú að bprja 24. árið, og fer því senn að verða fullveðja
og að öllu sjálfri sér ráðandi.
Framvegis mun hún svo koma út í Repkjuvík, sem tekur við
flestu þvi, er frá Kaupmannahöfn flptst.
Halda vill hún áfram með líku sniði og áður, reyna að vera