Aldamót - 01.01.1902, Blaðsíða 58
62
skamms að einum óaðgreinanlegum straum, sem renn-
ur gegn um alt landið suður í Mexico-flóa. En víst er
það viðkunnanlegra að vita, að það var áin með
hreina vatninu, sem hélt bæði nafninu og farveginum,
Mississippi.
Eg er að hugsa um hinn mikla andlega ,,vatna-
föður“, stærsta fljót hins andlega lífs, sem til er í
heiminum, kristindóminn. Hann á upptök sín við
rætur hæðarinnar Golgata og rennur eftir þeim far-
vegi, sem guðs andi greiðir honum, yfir hugskot og
hjörtu mannanna og stefnir beint til hins heilaga út-
hafs guðlegrar náðar í eilífu lífi og ber sálir mann-
anna þangað með sér. Kristindómurinn, þ. e. hið
heilaga evangelíum drottins vors Jesú Krists, flutt
heiminum með fulltingi heilags anda af guðspjalla-
mönnum og postulum, er hið hreina og lifandi vatn,
og í sjálfu sér breytir hann aldrei stefnu sinni og far-
vegi. En í farveg kristindómsins, það hreina vatn
guðlegrar opinberunar, hafa ávalt runnið margs konar
straumar mannlegra hugsana. Inn í Mississippi
kristindómsins rennur svo mörg Missouri mannvitsins.
Og oft getur glöggskygnt augað séð engu minni mis-
mun þeirra tveggja strauma, heldur en munurinn er á
vatninu þar sem hin tvö fljót renna saman í St. Louis.
Það átti að vera ætlunarverk mitt í dag að leitast
við að gjöra grein fyrir nokkuruin nýjum straumum,
sem á yfirstandandi tíð og í voru landi renna um hinn
hugsandi heim, og annaðhvort ná inn í sjálfan farveg
kristindómsins, eða svo nálægt honum að þeir hafa
áhrif á hann. Vitanlega eru hugsana-straumarnir í
nútíðinni svo margir, að örðugt er að velja úr þá, sem
helzt skyldu rannsakaðir; en ekki hægt að skoða