Samvinnan - 01.09.1927, Blaðsíða 17
SÁMVINN Á N
191
Prá sjónarmiði ritstjóra þessa tímarits hefir
Framtiðin. hr. S. G. tekið hér stórmerkiíegt mál til
meðferðar og gefið ljósa mynd af þvi, hve
ófullnægjandi verslunarástandið er þrátt fyrir allan kaup-
mannafjöldann. Reyndin er sú að á ári hverju renna
mörg hundruð þúsund, ef ekki miljónir króna af fram-
leiðslu íslensku þjóðarinnar, í vasa erlendra milliliða,
einkum þó danskra. Auk þess er öllum sýnilegt hvílíkan
feiknaskatt liin fjölmenna kaupsýslumannastétt í landinu
leggur á almenning, aðeins sér til framfæris. Það má
vænta að aukin meuning muni að einhverju leyti bæta
stétt samkepnismanna hér á landi. En að öllum líkindum
fer þó svo ef á að gera verslunina innlenda, ódýra,
þjóðlega og heilbrigða, þá verður það að vera verk sam-
vinnumanna, fyrst og fremst með því að efla og bæta
kaupfélögin (en þar af er mesti vandinn að bæta og
þroska hugsunarhátt almennings i landinu) og í öðru
lagi að hafa þau áhrif á stjórnmál landsins, að landið hafi
umráð þessarar verslunar, þar sem er að mæta erlend-
um og innlendum hringum.
Erlendur verslunarhringur, sem kepti við
Kælihúsið á kaupfélögin á Norður- og Austurlandi, hefir
Akureyri. nú liðast í sundur og selt eignir sínar.
Pélag þetta átti allmikið kælihús á Odd-
eyrartanganum og hefir Sambandið haft hús þetta á leigu
undanfarin haust. Nú nýverið hefi Kaupfélag Eyfirðinga
keypt þetta hús, með nokkurri lóð, og bryggjum á Tang-
anam. Er þetta mjög gagnlegt fyrir bændur sem ná til
verslunar að Akureyri, vegna útflutnings á kældu og
frystu kjöti til Englands. Að líkindum lætur kaupfélagið
reisa sláturhús á Tanganum síðar meir, og ef til vill er
þar heppilegur staður fyrir smjörbú það sem margír ey-
firskir samvinnumenn vilja koma upp á Akureyri á
næstu árum.